Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 14. febrúar 2002, kl. 11:26:39 (4626)

2002-02-14 11:26:39# 127. lþ. 78.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.

[11:26]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Þetta er undarlegt svar. Það er vitnað í Orkustofnun. Orkustofnun segir að það sé ekki sitt hlutverk að meta arðsemi þessa verkefnis og það er ekki að finna neinar upplýsingar um arðsemi þessara mestu framkvæmda sem Íslendingar hafa ráðist í nokkru sinni, engar upplýsingar um slíkt. Og þegar auglýst er eftir sundurgreiningu á þjóðhagslegum stærðum, sjálfum efnahagslegum forsendum þessara framkvæmda, eru engin svör. Ætlar ríkisstjórnin að bjóða Alþingi og þjóðinni upp á svona vinnubrögð?