Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 14. febrúar 2002, kl. 15:30:42 (4697)

2002-02-14 15:30:42# 127. lþ. 78.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.

[15:30]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. talaði af talsverðum tilfinningaþunga og mikilli sannfæringu um ágæti virkjunaráforma ríkisstjórnarinnar og hann hvatti Alþingi til þess að líta þessi mál nútímalegum augum. Finnst hv. þm. það vera nútímaleg vinnubrögð að ætlast til þess að Alþingi leggi blessun sína yfir framkvæmd sem nemur mörg hundruð milljörðum króna án þess að fyrir liggi útreikningar um arðsemi?