Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur

Mánudaginn 25. febrúar 2002, kl. 18:35:09 (5035)

2002-02-25 18:35:09# 127. lþ. 81.15 fundur 520. mál: #A Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur# (gjaldtökuheimildir og náttúrustofur) frv., umhvrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 127. lþ.

[18:35]

Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, nr. 60/1992, með síðari breytingum. Frv. þetta var lagt fram á 126. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.

Í frv. því sem hér er lagt fram hafa verið gerðar lítils háttar efnisbreytingar frá fyrra frv. sem fela það í sér að ekki er gert ráð fyrir að í samningi ráðherra og sveitarfélaga sé kveðið á um launakjör forstöðumanna, sbr. 3. gr. frv. Þá er í 5. gr. gerð sú breyting að kveðið er á um að skipa eigi stjórn náttúrustofa að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Að öðru leyti er frv. óbreytt frá því frv. sem lagt var fram á 126. löggjafarþingi.

Frv. þetta er samið af nefnd sem skipuð var 9. júní 2000 og var nefndinni falið það hlutverk að gera tillögur um framtíðarstöðu og hlutverk náttúrustofa í kjördæmum, sbr. lög nr. 60/1992, um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur. Nefndin skyldi hafa hliðsjón af þeirri reynslu sem fengist hefur af starfsemi náttúrustofa og hafa það að leiðarljósi að starfsemi þeirra styrki sveitarstjórnarstigið í framkvæmd náttúruverndarmála. Nefndinni var falið að huga sérstaklega að tengslum náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og starfsemi náttúrustofa í því sambandi. Þá var nefndinni ætlað að huga að verðandi breytingu á kjördæmaskipan landsins sem kemur til framkvæmda þegar næst verður kosið til Alþingis. Þær náttúrustofur sem starfræktar eru í dag eru sex talsins, náttúrustofa Austurlands, náttúrustofa Reykjaness, náttúrustofa Norðurlands vestra, náttúrustofa Suðurlands, náttúrustofa Vestfjarða og náttúrustofa Vesturlands.

Ég mun þá, virðulegur forseti, gera grein fyrir þeim breytingum sem frv. felur í sér.

Gerð er tillaga um að heimilt sé að starfrækja allt að átta náttúrustofur í landinu, en í dag eru þær sex eins og áður sagði og er því veitt heimild til að fjölga náttúrustofum um tvær. Ekki er gerð krafa um að staðsetning náttúrustofa verði bundin sérstaklega við kjördæmaskipan eins og nú er en ekki þykir rétt að binda í lög staðsetningu náttúrustofa.

Í 4. gr. frv. er kveðið á um verkefni náttúrustofa og lagt er til að þau verði aukin. Þannig er náttúrustofum ætluð ákveðin lögbundin verkefni sem án efa styrkir starfsemi þeirra. Það er nýmæli, sbr. c-lið 4. gr., að lagt er til að náttúrustofur veiti náttúruverndarnefndum á starfssvæði stofunnar upplýsingar og ráðgjöf á verksviði hennar. Hlutverk náttúrustofa fellur vel að þessu hlutverki náttúruverndarnefnda og ættu því náttúrustofur að geta styrkt starfsemi nefndanna og þar með sveitarstjórnarstigið í framkvæmd náttúruverndarmála.

Einnig er það nýmæli, sbr. e-lið 4. gr., að náttúrustofur annist almennt eftirlit með náttúru landsins, einkum í þeim landshluta sem náttúrustofan starfar. Ákvæðið tekur mið af 7. gr. náttúruverndarlaga, nr. 44/1999, en þar segir að Náttúruvernd ríkisins sé heimilt að fela náttúrustofum almennt eftirlit með náttúru landsins og ber að gera um það samning sem ráðherra staðfestir.

Gert er ráð fyrir að náttúrustofur verði alfarið á ábyrgð þeirra sveitarfélaga sem að þeim standa, en með stuðningi ríkisins sem ákveðinn er í fjárlögum hverju sinni. Sú viðmiðun er sett fram í frv. að framlag ríkissjóðs til reksturs náttúrustofu skuli nema launum forstöðumanns í fullu starfi að viðbættri upphæð sem er allt að jafnhá þeirri upphæð og rennur hún til reksturs náttúrustofu. Framlag ríkissjóðs er háð því skilyrði að þau sveitarfélög sem sjá um rekstur viðkomandi náttúrustofu leggi að lágmarki fram fjárhæð sem nemur 30% af framlagi ríkisins og jafnframt að fyrir liggi samningur milli umhvrh. og viðkomandi sveitarfélaga um rekstur náttúrustofu. Ég mun í þessu sambandi, virðulegur forseti, beita mér fyrir því að fast framlag ríkissjóðs til náttúrustofa verði hækkað í fjárlögum 2003 um 2 millj. kr. á hverja stofu, þannig að heildarhækkun til starfandi náttúrustofa verði 12 millj. kr. á því fjárlagaári.

Í samræmi við það að náttúrustofur starfa á vegum sveitarfélaga og á þeirra ábyrgð, er lagt til að breytt verði skipan stjórnar náttúrustofu þannig að viðkomandi sveitarfélög skipi samtals þrjá menn í stjórn náttúrustofu. Því er ekki gert ráð fyrir að formaður stjórnar verði skipaður af ráðherra eins og nú er, heldur af sveitarfélögum sem standa að viðkomandi stofu.

Þá eru í frv. lagðar til breytingar vegna heimildar Náttúrufræðistofnunar Íslands og náttúrustofa til gjaldtöku. Í 1. gr. frv. eru þannig talin upp þau verkefni sem Náttúrufræðistofnun Íslands hefur heimild til að taka gjald fyrir. Þá er lagt til að náttúrustofum verði veitt heimild til að taka gjald fyrir þau verkefni sem þeim eru falin skv. 6. gr. frv.

Að lokum er gerð tillaga um breytingu á gildandi lögum hvað varðar framlög og gjafir til Náttúrufræðistofnunar Íslands. Er þetta gert til að gæta samræmis við það sem gildir um aðrar stofnanir sem heyra undir umhvrn.

Hæstv. forseti. Ég hef hér rakið meginefni frv. og legg til að að aflokinni 1. umr. verði frv. vísað til 2. umr. og til umfjöllunar í hv. umhvn.