Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 04. apríl 2002, kl. 11:17:42 (6909)

2002-04-04 11:17:42# 127. lþ. 109.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, heilbrrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 127. lþ.

[11:17]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Hér er komið að atkvæðagreiðslu um eitt stærsta mál sem Alþingi hefur haft til meðferðar, eitt stærsta mál fyrir þjóðina, Austurland og framtíðina. Upplýsingar liggja fyrir um málið á Alþingi og allar dylgjur um lygar í þessu máli eru þeim ekki til sóma sem fara með þær. Mikilvægt skref varðandi framgang þessa máls er stigið í dag. Að sjálfsögðu segi ég já og mun samþykkja þetta frv. sem hér liggur fyrir.