Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég er afar þakklátur fyrir þann áhuga sem hv. þm. sýnir á störfum, stefnu og skoðunum Verslunarráðs Íslands. Ég verð bara sem framkvæmdastjóri ráðsins að bjóða henni í kaffi til að kynna sér það.