Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég undirstrika að með þessum orðum og yfirlýsingum sem við höfum verið að gefa í tengslum við stefnuræðuna erum við að leggja áherslu á að setja þennan þátt í ákveðinn forgang innan heilbrigðismálaflokksins, hins stóra heilbrigðismálaflokks. Þess mun síðan sjást merki hér í meðförum þingsins þegar að því kemur.