Útflutningsskylda sauðfjárafurða

Miðvikudaginn 05. desember 2001, kl. 15:03:05 (2530)

2001-12-05 15:03:05# 127. lþ. 44.2 fundur 259. mál: #A útflutningsskylda sauðfjárafurða# fsp. (til munnl.) frá landbrh., SJóh
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 127. lþ.

[15:03]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Hér er stungið á slæmu kýli. Ég verð að segja að ég er auðvitað þakklát fyrir hversu greið svör hæstv. landbrh. gaf við spurningum hv. þm. Árna R. Árnasonar um þetta efni. Það er grafalvarlegt mál að hér hafi verið dengt á innanlandsmarkað 260 tonnum frá þessu eina fyrirtæki sem núna er komið í gjaldþrot og mun sjálfsagt aldrei geta staðið skil á því útflutningsgjaldi sem gert var ráð fyrir auk þess sem þetta gjöreyðileggur markaðinn fyrir kjötframleiðsluna á þessu ári.

Ég verð að segja að ég tek undir með hv. þm. Þuríði Backman. Þetta mál verður að rannsaka sem glæpamál.