2. FUNDUR
þriðjudaginn 2. okt.,
kl. 7.50 síðdegis.
[19:50]
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumræður).
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur, aðrir en þingflokkur forsætisráðherra, til umráða 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver.
Röð flokkanna í öllum umferðum var þessi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Davíð Oddsson forsrh. í fyrstu umferð, í annarri umferð Ásta Möller, 19. þm. Reykv., og Guðjón Guðmundsson, 4. þm. Vesturl., í þriðju umferð.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru Össur Skarphéðinsson, 7. þm. Reykv., í fyrstu umferð, í annarri umferð Margrét Frímannsdóttir, 3. þm. Suðurl., og Jóhann Ársælsson, 3. þm. Vesturl., í þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Siv Friðleifsdóttir umhvrh. í fyrstu umferð, í annarri umferð Jón Kristjánsson heilbrrh., og í þriðju umferð Magnús Stefánsson, 2. þm. Vesturl.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðurl. e., í fyrstu umferð, í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 17. þm. Reykv., og í þriðju umferð Jón Bjarnason, 5. þm. Norðurl. v.
Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., og Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., í annarri og þriðju umferð.
Fundi slitið kl. 22:01.
---------------