Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 239  —  214. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um rannsóknir á áhrifum veiðarfæra.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hve margir veiðarfærasérfræðingar eru starfandi á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar og hvar á landinu eru þeir staðsettir?
     2.      Hvaða rannsóknir eru í gangi á vegum stofnunarinnar á áhrifum veiðarfæra á lífríki sjávar?


Skriflegt svar óskast.