Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 273  —  242. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um framkvæmdanefnd um einkavæðingu.

Frá Kristjáni L. Möller.



     1.      Hvenær var framkvæmdanefnd um einkavæðingu skipuð og hverjir hafa setið í henni?
     2.      Hver er heildarþóknun til nefndarmanna, sundurliðað eftir nefndarmönnum og árum?
     3.      Hafa nefndarmenn fengið einhverjar aðrar greiðslur fyrir störf sín í nefndinni? Ef svo er, hverjar eru þær og fyrir hvaða verkefni, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hefur nefndin keypt eða fengið einhverja utanaðkomandi þjónustu og ef svo er, hver er hún, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.