Ferill 258. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 303  —  258. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um hvali.

Frá Gunnari Birgissyni.



     1.      Hversu stórir eru einstakir hvalastofnar nú miðað við stærð þeirra seint á nítjándu öld?
     2.      Hversu miklu af botnfiski er áætlað að tannhvalir sporðrenni á ári hverju?
     3.      Hafa fiskifræðingar Hafrannsóknastofnunarinnar tekið tillit til þess magns sem hvalir éta af botnfiski við ákvörðun á veiðikvótum fyrir hinar ýmsu botnfiskstegundir?