Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 654 — 397. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um ákvæði laga um skottulækningar.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
1. Hefur ráðherra einhverjar áætlanir um endurskoðun á ákvæðum læknalaga um skottulækningar?
2. Telur ráðherra koma til greina að endurskoða umrædd lagaákvæði með það að markmiði að óhefðbundnar lækningaaðferðir, svo sem nálarstungumeðferð (acupuncture), smáskammtalækningar (homeopathy), lið- og beinskekkjulækningar (osteopathy), hnykklækningar (chiropractic) og nudd, geti hlotið viðurkenningu að uppfylltum skilyrðum?