Ferill 486. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 770  —  486. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um útræðisrétt strandjarða.

Frá Árna Steinari Jóhannssyni og Jóni Bjarnasyni.



    Mun ráðherra beita sér fyrir því að fundin verði leið til þess að tryggja að útræðisréttur strandjarða verði virtur á ný og að sá réttur verði endurskilgreindur og staðfestur í nýjum lögum um stjórn fiskveiða?