Ferill 527. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 829 — 527. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 50/1997, um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands.
Flm.: Lúðvík Bergvinsson, Svanfríður Jónasdóttir.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Í reglugerð nr. 96/1969 um Stjórnarráð Íslands segir að fjármálaráðuneytið fari með eignir ríkisins, þar á meðal verðbréf og hlutabréf, svo og fyrirsvar vegna þeirra, m.a. að því er tekur til stjórnar fyrirtækja í eigu ríkisins að öllu leyti eða nokkru, nema lagt sé til annars ráðuneytis.
Undanfarið hefur þeirrar tilhneigingar hins vegar gætt þegar opinberum fyrirtækjum er breytt í hlutafélög að fagráðherra fari áfram með hlut ríkisins í fyrirtækinu. Það getur leitt til þess að þegar selja skal hlut ríkisins komi upp afar erfið staða fyrir viðkomandi ráðherra sem getur bitnað á fyrirtækinu sjálfu og starfsumhverfi fyrirtækja í viðkomandi grein.
Undir viðskiptaráðherra heyra m.a. bankamál, samkeppnismál og mál er varða óréttmæta viðskiptahætti. Hann fer jafnframt með eignarhlut ríkisins í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. og verður því að viðhalda virði þeirra.
Brýnt er að þeirri meginreglu sem mörkuð er í reglugerðinni um Stjórnarráð Íslands sé fylgt og fjármálaráðuneytið fari með eignarhlut ríkisins í samkeppnisfyrirtækjum. Fagráðherra á hverju sviði verði þá fagráðherra allra fyrirtækja á viðkomandi sviði en ekki sérstakur ráðherra einstakra fyrirtækja. Slíkt hefur vakið tortryggni og hafa fyrirtæki á markaðinum haldið því fram að það leiddi til samkeppnisforskots að hafa undir höndum upplýsingar um að stjórnvaldsreglur af tilteknu tagi séu í undirbúningi.
Það er betra bæði fyrir opinberu fyrirtækin og markaðinn að leikreglur séu skýrar og opinber fyrirtæki í samkeppnisgreinum sæti ekki þeirri gagnrýni að þau njóti þess að æðsti yfirmaður þeirra fari með stjórn og eignarráð í þeim og setji að auki leikreglur fyrir markaðinn almennt.
Frumvarp þetta var áður flutt á 125. þingi en varð ekki útrætt og er því endurflutt nú.