Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1152 — 378. mál.
Breytingartillaga
við frv. til l. um breyt. á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 89/1991, með síðari breytingum.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
Á eftir 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Við 1. mgr. 4. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé vatnsveita sveitarfélags rekin sem hluti af víðtækari starfsemi fyrirtækis skal undanskilja vatnsveituna verði slíku fyrirtæki breytt í hlutafélag.