Ferill 649. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1248  —  649. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um Tækniháskóla Íslands.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Val Árnason og Hellen Gunnarsdóttur frá menntamálaráðuneyti og frá Tækniskóla Íslands komu Guðbrandur Steinþórsson, Rúnar Pálmason, Grétar Páll Jónsson, Guðlaugur Einarsson, Haraldur Auðunsson og Steindór Haarde. Umsagnir bárust frá Félagi geislafræðinga, Félagi tækniskólakennara, Samtökum iðnaðarins, rektor Tækniskóla Íslands, Iðnfræðingafélagi Íslands, Alþýðusambandi Íslands, Kennaraháskóla Íslands, Bandalagi háskólamanna, Kennarasambandi Íslands, Háskóla Íslands, Reykjavíkurakademíunni, Háskólanum á Akureyri, Tæknifræðingafélagi Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Þá barst sameiginleg umsögn frá fimm kennurum verkfræðideildar Háskóla Íslands, þeim Birni Kristinssyni, Bjarna Bessasyni, Guðmundi R. Jónssyni, Jóni Atla Benediktssyni og Sigurði Brynjólfssyni.
    Með lagafrumvarpi þessu er verið að samræma lög um Tækniskóla Íslands lögum um háskóla, nr. 136/1997, en þau lög kveða á um að endurskoða skuli lög um háskólastofnanir sem undir lögin heyra. Með þessum breytingum er skólinn kominn á háskólastig og ber að fagna því.
    Meginmarkmið frumvarpsins er að staðfesta stöðu skólans sem háskóla í skólakerfinu og laga skipulag hans að lögum um háskóla. Háskólaráð verður æðsti ákvörðunaraðili innan háskólans nema annað sé ótvírætt tekið fram í lögum og gert er ráð fyrir því að menntamálaráðherra skipi tvo fulltrúa af sex í ráðið. Nefndin telur mikilvægt að fulltrúar þeir sem ráðherra tilnefnir komi úr atvinnulífinu.
    Ákvæði frumvarpsins um stjórnsýslu háskólans eru í samræmi við lög um háskóla en auk þess eru ýmis ákvæði frumvarpsins sambærileg ákvæðum laga um Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Með þessu er stuðlað að samræmi á milli þessara háskóla og jafnframt lagður traustari grunnur að auknu samstarfi Tækniháskólans við aðra skóla á háskólastigi.
    Tækniháskóli Íslands á að vera fagháskóli á sviði tækni og rekstrar sem miðlar sérhæfðri þekkingu á háskólastigi. Tækniskóli Íslands veitir nú menntun á tækni-, iðnaðar-, heilbrigðis- og rekstrarsviðum og hefur mestur hluti námsins verið á háskólastigi. Nefndin tekur undir þá staðhæfingu sem fram kemur í frumvarpinu að ekkert sé því til fyrirstöðu að námsframboð háskólans geti breyst í framtíðinni þótt aðaláherslan verði lögð á tæknimenntun.




Prentað upp.

    Nefndin ræddi á fundum sínum þá rannsóknaheimild til handa háskólanum sem fram kemur í 1. gr. Að loknum viðræðum við gesti er það mat hennar að eðlilegt sé að umrætt ákvæði feli í sér heimild en ekki skyldu til rannsókna þar sem slíkt ákvæði gæti verið íþyngjandi fyrir háskólann. Heimildin er þannig höfð opin til þess að háskólinn geti lagað sig að rannsóknarvinnu.
    Þá leggur nefndin áherslu á mikilvægi þeirrar heimildar sem fram kemur í 14. gr. um gerð samstarfssamninga milli háskólans og annarra stofnana og fyrirtækja sem tengjast starfssviði háskólans. Tækniháskóla Íslands er þannig gert kleift að hafa samstarf við fyrirtæki og rannsóknastofnanir atvinnulífsins á fjölbreyttum grunni sem er mikilvægt til að efla og styrkja starfsemi hans og uppbyggingu til frambúðar. Nefndin telur að hér sé um að ræða lykilatriði í þeim tilgangi að tengja Tækniháskólann við atvinnulífið.
    Fram kemur í 15. gr. að gert er ráð fyrir að Tækniháskóli Íslands taki við skuldbindingum sem gerðar hafa verið í nafni Tækniskóla Íslands. Í kostnaðarmati fjármálaráðuneytisins kemur fram að halli á rekstri Tækniskóla Íslands nemi nú um 260 millj. kr. Þá er því jafnframt haldið fram að frumvarpið gefi tilefni til nokkurs útgjaldaauka vegna ýmissa atriða.
Nefndin lítur svo á að leysa verði uppsafnaðan fjárhagsvanda Tækniskóla Íslands þannig að Tækniháskóli Íslands geti hafið starfsemi með hreint borð.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með orðalagsbreytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 16. apríl 2002.



Gunnar Birgisson,


form., frsm.


Sigríður Jóhannesdóttir,


með fyrirvara.


Þorgerður K. Gunnarsdóttir.



Einar Már Sigurðarson,


með fyrirvara.


Sigríður Ingvarsdóttir.


Kolbrún Halldórsdóttir.



Kjartan Ólafsson.


Kristinn H. Gunnarsson.