Ferill 627. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1363 — 627. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Svanfríðar Jónasdóttur og Þórunnar Sveinbjarnardóttur um fjölda fæðinga og kostnað við þær.
1. Hver var fjöldi fæðinga á ári 1998–2001, sundurliðað eftir
a. heimafæðingum,
b. fæðingum á fæðingardeildum sjúkrahúsa,
c. fjölda fæðinga á hverri fæðingardeild fyrir sig,
d. fjölda barna sem tekin voru með keisaraskurði á hverjum stað?
Vísað er í eftirfarandi töflu um fjölda fæðinga á árunum 1998–2001, fjölda heimafæðinga og fjölda keisaraskurða. Hvað varðar fjölda fæðinga á hverri fæðingardeild, þá er einungis ein deild á hverri þeirra stofnana sem upp eru taldar í töflunni.
Ekki ber saman upplýsingum frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi, sem heldur utan um fæðingarskrá og Tryggingastofnun ríkisins um fjölda heimafæðinga, sbr. svar við seinni lið fyrirspurnarinnar. Þessi mismunur skýrist m.a. af því að áformuð fæðing heima endar stundum á sjúkrahúsi og er því skráð sem sjúkrahússfæðing en ljósmóðir innheimtir engu að síður fyrir yfirsetuna heima. Í öðrum tilvikum fæðir kona óvænt heima eða á leið á sjúkrahús og eru þær fæðingar skráðar sem heimafæðingar þótt sængurlegu ljúki á sjúkrahúsi og ekki komi til neinnar innheimtu frá Tryggingastofnun ríkisins.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hver er kostnaður Tryggingastofnunar og/eða sjúkrahúss við
a. heimafæðingu,
b. fæðingu á fæðingardeild sjúkrahúss við mismunandi langa sængurlegu,
c. keisaraskurð?
Vísað er í töflur um kostnað Tryggingastofnunar við heimafæðingar á árunum 1998–2001. Fyrri taflan sýnir samantekt yfir fjölda heimafæðinga, heildarkostnað og meðalkostnað. Innifaldar í þessum tölum eru fæðingar sem fyrirhugað var að færu fram í heimahúsi og hófust þar en lauk á sjúkrahúsi. Þegar um heimafæðingu er að ræða er auk kostnaðar við fæðingarhjálpina sjálfa greitt fyrir ellefu vitjanir til sængurkonu eftir fæðingu og frá og með 1. maí 1999 fyrir allt að þrjár vitjanir fyrir fæðingu. Seinni taflan sýnir yfirlit yfir gjaldskrá vegna heimafæðinga fyrir árin 1998–2001. Ekki er algilt að farið sé í þrjár vitjanir fyrir fæðingu og ellefu vitjanir eftir fæðingu en það er þó langoftast gert.
Kostnaður Tryggingastofnunar við heimafæðingar.
Yfirlit yfir fjölda heimafæðinga, heildarkostnað og meðalkostnað.
| Ár | Fjöldi heimafæðinga | Kostnaður Tryggingastofnunar | Meðalkostnaður við fæðingu |
| 1998 | 2 | 57.710 kr. | 28.855 kr. |
| 1999 | 11 | 414.883 kr. | 37.717 kr. |
| 2000 | 33 | 1.273.124 kr. | 38.580 kr. |
| 2001 | 20 | 807.820 kr. | 40.391 kr. |
Yfirlit yfir gjaldskrá vegna heimafæðinga.
| Ár | Þrjár vitjanir fyrir fæðingu | Aðstoð við fæðingu | Ellefu vitjanir eftir fæðingu | Samtals |
| 1998 | — | 28.855 kr. | 30.701 kr. | 59.556 kr. |
| 1999 | 9.423 kr. | 40.100 kr. | 34.551 kr. | 84.074 kr. |
| 2000 | 9.621 kr. | 40.938 kr. | 35.277 kr. | 85.836 kr. |
| 2001 | 10.269 kr. | 43.697 kr. | 37.653 kr. | 91.619 kr. |
Fyrirspurn þessi var framsend til allra hlutaðeigandi stofnana en almennt liggur ekki fyrir kostnaðargreining vegna þeirra atriða sem spurt er um. Ráðuneytinu bárust mjög takmarkaðar upplýsingar þar að lútandi og á engan hátt samanburðarhæfar. Hér fylgir hins vegar yfirlit yfir kostnað við fæðingar á fæðingardeild Landspítala – háskólasjúkrahúss samkvæmt DRG-greiningu, en Landspítalinn er eina heilbrigðisstofnunin þar sem slík kostnaðargreining hefur verið gerð. 1)
Landspítali – háskólasjúkrahús.
Kostnaður við fæðingar samkvæmt DRG-greiningu 2002.
| DRG | DRG-heiti | Meðallegutími | Hlutfall | Kostnaður |
| 373 | Eðlileg fæðing án fylgikvilla | 2,3 | 74,9% | 147.900 |
| 371 | Keisaraskurður án fylgikvilla | 6,2 | 15,4% | 323.850 |
| 372 | Fæðing ásamt fylgikvillum | 4,1 | 6,4% | 173.400 |
| 370 | Keisaraskurður með fylgikvillum | 8,0 | 2,0% | 446.250 |
| 374 | Fæðing ásamt ófrjósemisaðgerð eða annarri minni háttar skurðaðgerð | 4,0 |
0,7% |
183.600 |
| 375 | Fæðing ásamt skurðaðgerð öðrum en ófrjósemisaðgerð eða minni háttar skurðaðgerð | 4,0 |
0,5% |
239.700 |