Ferill 338. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1449 — 338. mál.
Frumvarp til laga
um búfjárhald o.fl.
(Eftir 2. umr., 30. apríl.)
I. KAFLI
Markmið, yfirstjórn og skilgreiningar.
1. gr.
2. gr.
Með búfé er í lögum þessum átt við alifugla, geitfé, hross, kanínur, loðdýr, nautgripi, sauðfé og svín. Rísi ágreiningur um hvað skuli falla undir hugtakið búfé sker landbúnaðarráðherra úr.
3. gr.
1. Aðbúnaður búfjár er umhirða, húsakostur og/eða skjól.
2. Friðað svæði er land afmarkað vörslulínu sem hindrar aðgang búfjár.
3. Gripheld girðing er mannvirki úr ýmsu efni sem reist er til að hindra frjálsa för búfjár. Hún er breytileg að gerð og gæðum eftir tegund. Girðing getur miðast við aldur og kyneiginleika búfjár, verið fjárheld, hrossheld, nautgripaheld, graðpeningsheld o.s.frv.
4. Hagaganga er það þegar eigandi búfjár kemur því í haga til annars aðila án þess að taka landið á leigu og gerir um það samning. Sá aðili verður þar með umráðamaður búfjárins.
5. Landspilda er ákveðinn hluti lands sem afmarkaður hefur verið.
6. Lausaganga er þegar búfé getur gengið í annars manns land í óleyfi.
7. Lausagöngubann er bann sem sveitarstjórn samþykkir fyrir sveitarfélagið í heild eða hluta þess og auglýsir í Stjórnartíðindum til að koma í veg fyrir lausagöngu búfjár, einnar tegundar eða fleiri.
8. Umráðamaður búfjár er eigandi búfjár eða aðili sem er ábyrgur fyrir fóðrun, aðbúnaði, og vörslu þess í samræmi við gildandi reglur í viðkomandi sveitarfélagi og samkvæmt samningi milli aðila.
9. Umráðamaður lands er sá aðili sem hefur rétt til að ráðstafa nýtingu landsins.
10. Tilsjónarmaður er sá aðili sem tekið hefur að sér fóðrun og eftirlit með aðbúnaði en ber ekki ábyrgð á því nema gerður hafi verið um það samningur og er hann þá þar með orðinn umráðamaður búfjár.
11. Varsla búfjár er þegar umráðamaður búfjár heldur því innan afmarkaðs svæðis.
12. Vörslukrafa er krafa eða viðmiðun um gerð og gæði tiltekinnar vörslu, mismikil eftir tegund, aldri og kyneiginleikum búfjár.
13. Vörslulína er gripheld girðing, hlið og önnur mannvirki svo og náttúrlegur farartálmi sem kemur algerlega í veg fyrir frjálsa för búfjár allt árið eða á þeim tímum árs þegar búfjár er von á svæðinu.
14. Vörsluskylda er skilyrðislaus krafa um að umráðamaður búfjár ábyrgist að búfé í umsjá hans sé haldið innan afmarkaðs svæðis allt árið eða tiltekna hluta þess.
II. KAFLI
Takmörkun búfjárhalds.
4. gr.
5. gr.
Í samþykktum sveitarstjórna um búfjárhald má ákveða að tiltekið búfjárhald sé með öllu bannað í viðkomandi sveitarfélagi eða takmarkað á tilteknum svæðum innan sveitarfélagsins. Verði búfjáreigandi fyrir atvinnutjóni vegna banns eða takmarkana á búfjárhaldi, þannig að bótum varði, skal greiða bætur úr sveitarsjóði.
Um mat bóta skv. 2. mgr. skal fara að hætti mats á eignarnámsbótum og sér matsnefnd eignarnámsbóta um framkvæmd matsins.
III. KAFLI
Varsla búfjár.
6. gr.
Þar sem sveitarstjórn hefur gert umráðamönnum búfjár skylt að hafa búfé í vörslu skal vera gripheld girðing og ber umráðamaður búfjár ábyrgð á að svo sé. Um kostnað við uppsetningu girðinga og viðhald fer eftir ákvæðum girðingar- og vegalaga.
7. gr.
1. Naut, 6 mánaða og eldri, allt árið.
2. Hrútar og hafrar, á tímabilinu frá 1. nóvember til 1. maí ár hvert.
3. Graðhestar eða laungraðir hestar, 10 mánaða og eldri, allt árið.
4. Aðrar búfjártegundir en framan greinir, allt árið.
Sveitarstjórn skal hlutast til um að graðpeningur, sem ekki er í öruggri vörslu, sé handsamaður og honum komið í örugga vörslu. Eigandi getur leyst til sín viðkomandi graðpening gegn greiðslu áfallins kostnaðar. Við ítrekuð brot skal graðhestur seldur nauðungarsölu samkvæmt nauðungarsölulögum en felldur verði hann ekki seldur. Öðrum graðpeningi skal slátrað og sölu- eða frálagsverð látið mæta áföllnum kostnaði.
8. gr.
9. gr.
Sveitarstjórn og umráðamaður lands eiga lögveð í búfénu fyrir sannanlegum kostnaði.
IV. KAFLI
Um forðagæslu, eftirlit og talningu búfjár.
10. gr.
Sveitarfélög skulu ráða búfjáreftirlitsmann, einn eða fleiri eftir umfangi hvers svæðis, og sjá honum fyrir starfsaðstöðu og búnaði til starfsins. Búfjáreftirlitsmenn hafa eftirlit með ásetningi búfjár, aðbúnaði, fóðrun og beit, auk annarra verkefna sem þeim eru falin. Til starfsins skal velja menn sem hafa a.m.k. búfræðimenntun. Áður en búfjáreftirlitsmenn taka til starfa skulu þeir sækja sérstakt námskeið á vegum Bændasamtaka Íslands sem samræmir jafnframt framkvæmd búfjáreftirlits. Bændasamtök Íslands skulu útbúa sérstaka handbók fyrir búfjáreftirlitsmenn með helstu upplýsingum. Um sérstakt hæfi búfjáreftirlitsmanna fer eftir stjórnsýslulögum, nr. 37/1993.
Sveitarfélög á hverju starfssvæði geta með samkomulagi sín í milli falið sérstökum aðila umsjón með fjárreiðum og aðstöðu fyrir búfjáreftirlitið, t.d. búnaðarsamböndum, eða falið stærsta sveitarfélaginu að hafa umsjón með þessum þáttum.
Kostnaður við búfjáreftirlit greiðist af sveitarfélögunum. Sveitarstjórn er þó heimilt að krefja umráðamann búfjár um kostnað sem hlýst af handsömun, fóðrun og hýsingu gripa, sbr. 9., 15. og 16. gr., samkvæmt gjaldskrá sem staðfest skal af ráðherra.
Á hverju búfjáreftirlitssvæði sem nær yfir fleiri en eitt sveitarfélag starfar búfjáreftirlitsnefnd skipuð þremur fulltrúum og jafnmörgum til vara og eru þeir valdir af sveitarfélögunum eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar til fjögurra ára. Búfjáreftirlitsnefnd kemur saman a.m.k. tvisvar á ári, þ.e. að vori og hausti. Búfjáreftirlitsnefnd annast yfirstjórn búfjáreftirlitsins fyrir hönd sveitarfélaganna, gerir fjárhagsáætlanir um rekstur eftirlitsins og leggur þær fyrir sveitarstjórnir til samþykktar. Búfjáreftirlitsmenn gefa búfjáreftirlitsnefnd skýrslu um störf sín á fundum nefndarinnar.
11. gr.
12. gr.
Um gjaldtöku vegna eftirlits fer samkvæmt gildandi gjaldskrá, sbr. 4. mgr. 10. gr.
13. gr.
Leiki rökstuddur grunur á að talningu búfjár hafi verið ábótavant er landbúnaðarráðherra heimilt að ákveða sérstaka talningu búfjár.
14. gr.
15. gr.
16. gr.
Neiti umráðamaður búfjár eftirlitsaðilum um aðgang að gripahúsum og/eða beitilöndum þannig að ekki verði komið við eftirliti skal héraðsdýralæknir tilkynna lögreglustjóra það skriflega innan sólarhrings og skal lögreglustjóri þá óska eftir dómsúrskurði innan sólarhrings frá tilkynningu.
Virði umráðamaður búfjár ekki þær ráðstafanir sem lagðar voru fyrir eða geti ekki orðið við þeim og/eða héraðsdýralæknir telur úrbætur ekki þola bið skal lögreglustjóri taka búfé úr vörslu umráðamanns búfjár innan tveggja sólarhringa.
Lögreglustjóri skal ráðstafa búfé í samráði við héraðsdýralækni og sveitarstjórn eftir vörslusviptingu. Heimilt er að aflífa búféð að undangengnum fjögurra sólarhringa andmælafresti umráðamanns búfjár.
Héraðsdýralæknir getur í samráði við yfirdýralækni aflífað innan sólarhrings búfé sem orðið hefur fyrir varanlegum skaða sökum vanfóðrunar, harðýðgi, slysa eða slæms aðbúnaðar. Lögreglustjóri ber ábyrgð á þeim aðgerðum.
Í öllum tilvikum ber sveitarstjórn að útvega fóður, hlutast til um fóðrun og aðbúnað eða ráðstafa búfé til fóðrunar þar til það hefur verið tekið úr vörslu búfjáreiganda. Sjái sveitarstjórn sér ekki fært að útvega fóður, hlutast til um fóðrun eða sjá um aðbúnað búfjárins skal þegar grípa til vörslusviptingar, sbr. 3. mgr.
Umráðamaður búfjár er hlut á að máli ber allan kostnað af þessum ráðstöfunum. Um gjaldtöku vegna eftirlits fer samkvæmt gildandi gjaldskrá, sbr. ákvæði 4. mgr. 10. gr. Sveitarstjórn, lögreglustjóri og eftirlitsaðilar eiga lögveð í búfénu vegna kostnaðar sem hlýst af framkvæmd þessarar greinar eða kröfurétt í aðrar eignir hans. Þó skal viðkomandi eftirlitsaðili bera kostnað sem hlýst af tilefnislausri tilkynningu.
V. KAFLI
Ýmis ákvæði.
17. gr.
1. Reglugerð um merkingar búfjár þar sem kveðið er á um að umráðamönnum búfjár sé skylt að merkja allt búfé sitt samkvæmt viðurkenndu merkingar- og skráningarkerfi.
2. Reglugerð um vörslu búfjár. Í reglugerðinni skal fjallað um almenn ákvæði um vörslu búfjár af hverri tegund og einnig kveðið á um almennar reglur um framkvæmd þeirrar vörslu.
3. Reglugerðir um aðbúnað og meðferð búfjár. Ráðherra gefur út reglugerð fyrir hverja einstaka búfjártegund, í samvinnu við viðkomandi búgreinasamband, Bændasamtök Íslands og yfirdýralækni. Í reglugerðunum skal kveðið á um mismunandi reglur sem gilda um búfé eftir tegund og aldri þess. Í reglugerðum um aðbúnað skal kveðið á um leyfi til framleiðslu og sölu afurðanna og skilyrði sem umráðamenn búfjár þurfa að uppfylla til að öðlast slíkt leyfi. Eins skal kveðið á um aðgerðir ef framleiðendur eru sviptir framleiðsluleyfi. Eftirlit með framkvæmd aðbúnaðarreglugerða skal falið búfjáreftirlitsmönnum og héraðsdýralæknum.
4. Reglugerð um starfssvæði búfjáreftirlits og framkvæmd þess, svo sem forðagæslu, eftirlitið sjálft og talningu búfjár. Í reglugerðinni skal m.a. fjalla um haust- og vorskýrslur.
18. gr.
19. gr.