Ferill 504. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1451 — 504. mál.
Frumvarp til laga
um varnir gegn landbroti.
(Eftir 2. umr., 30. apríl.)
I. KAFLI
Tilgangur, skilgreiningar og yfirstjórn.
1. gr.
Tilgangur.
2. gr.
Skilgreiningar.
1. Fyrirhleðsla: Mannvirki til varnar gegn landbroti, svo sem til að hafa áhrif á rennsli vatna eða verja land og mannvirki fyrir ágangi vatna með öðrum hætti.
2. Landbrot: Jarðvegsrof og gróðureyðing sem stafar af ágangi vatna.
3. Landkostir: Auðlindir sem felast í gróðri, jarðvegi og vistkerfum landsins.
4. Nytjaland: Land sem tekið hefur verið til sérstakra nytja, svo sem þaulræktar eða skógræktar.
5. Umráðahafi lands: Sá telst umráðahafi lands sem hefur lögmætan rétt til að ráðstafa nýtingu þess.
3. gr.
Yfirstjórn.
II. KAFLI
Framkvæmd.
4. gr.
Hlutverk Landgræðslu ríkisins – forgangsröðun.
Við forgangsröðun verkefna skal höfð hliðsjón af verðmæti þess lands eða mannvirkis sem landbrotið ógnar. Nytjalönd, mannvirki og gróðurlendi skulu jafnan njóta forgangs við röðun verkefna.
Landgræðsla ríkisins telst ávallt vera framkvæmdaraðili þegar unnið er að fyrirhleðslum samkvæmt lögum þessum.
5. gr.
Hlutverk umráðahafa lands og skráning Landgræðslu ríkisins.
6. gr.
Samráð um fyrirhleðslur.
Vilji landeigandi eða veiðifélag gera athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd skal hún vera skrifleg og berast Landgræðslu ríkisins innan fjögurra vikna frá dagsetningu tilkynningar.
Landgræðsla ríkisins skal hafa samráð við viðkomandi búnaðarsamband eða héraðsráðunauta um forgangsröðun fyrirhleðsluverkefna. Hún getur einnig haft samráð við þessa aðila um eftirlit með framkvæmdum og viðhald fyrirhleðslna.
7. gr.
Framkvæmdir við fyrirhleðslur.
8. gr.
Kostnaður við fyrirhleðslur.
Þegar fyrirhleðslu er bæði ætlað að verja samgöngu- og/eða veitumannvirki og land skal kostnaður við framkvæmdirnar og undirbúning þeirra skiptast milli Landgræðslu ríkisins og þess aðila skv. 1. mgr. sem viðkomandi mannvirki heyra undir, eftir nánara samkomulagi þeirra á milli. Ef upp kemur ágreiningur um skiptingu þessa kostnaðar skal landbúnaðarráðherra skera úr.
Landgræðslu ríkisins er heimilt að styrkja framkvæmdir við fyrirhleðslur sem ætlað er að vernda mannvirki eða land í eigu einkaaðila. Auglýsa skal eftir umsóknum um slíka styrki á opinberum vettvangi þar sem fram koma skilyrði þau sem umsækjandi þarf að uppfylla til að geta hlotið styrk, sem og hámarksfjárhæð styrks.
Kostnaður við framkvæmd laga þessara er greiddur úr ríkissjóði eftir því sem ákveðið er í fjárlögum.
III. KAFLI
Ýmis ákvæði.
9. gr.
Bætur fyrir tjón af völdum fyrirhleðslna.
10. gr.
Heimild til útgáfu reglugerða.
11. gr.
Ágreiningsmál og kærur.
12. gr.
Gildistaka o.fl.