Afgreiðsla forsætisnefndar á beiðni um skýrslu

Þriðjudaginn 04. febrúar 2003, kl. 13:34:32 (3330)

2003-02-04 13:34:32# 128. lþ. 71.91 fundur 397#B afgreiðsla forsætisnefndar á beiðni um skýrslu# (aths. um störf þingsins), JÁ
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 128. lþ.

[13:34]

Jóhann Ársælsson:

Hæstv. forseti. Mér finnst menn ganga býsna hart fram í þessu máli. Hæstv. forseti virðist hafa það sem eitthvert stærsta mál ævi sinnar að koma í veg fyrir að menn fái að sjá þennan starfslokasamning. Ég ætla satt að segja að vona að hæstv. forseti endurskoði afstöðu sína og geri þinginu ekki þá niðurlægingu að ekki sé hægt að beita þeim ráðum sem hér eru höfð til þess að fá upplýsingar. Mér finnst það satt að segja alls ekki vera á bætandi ofan á önnur afglöp hæstv. forseta.