Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Nú að loknum atkvæðagreiðslum fer fram umræða utan dagskrár um tækni- og iðnmenntun. Málshefjandi er hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson. Hæstv. menntmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.