Upplýsingaskylda um launakjör

Mánudaginn 03. mars 2003, kl. 15:12:13 (4247)

2003-03-03 15:12:13# 128. lþ. 86.1 fundur 453#B upplýsingaskylda um launakjör# (óundirbúin fsp.), JóhS
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 128. lþ.

[15:12]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir þessi svör. Af orðum hennar að dæma lít ég svo á að hæstv. ráðherra muni beita sér fyrir því við Fjármálaeftirlitið eða beina því til Fjármálaeftirlitsins að skoða þetta mál og að settar verði sambærilegar reglur um launakjör og hvers konar hlunnindi og kaupauka hjá stjórnendum lífeyrissjóða og sparisjóða. Því fagna ég, hæstv. forseti.