2003-03-14 01:01:09# 128. lþ. 100.47 fundur 599. mál: #A fjarskipti# (heildarlög, EES-reglur) frv. 81/2003, Frsm. meiri hluta GHall
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 128. lþ.

[25:01]

Frsm. meiri hluta samgn. (Guðmundur Hallvarðsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hluta samgn. um frv. til laga um fjarskipti.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið fjölmarga aðila á sinn fund. Jafnframt bárust nefndinni fjölmargar umsagnir sem hún fór yfir.

Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði ný heildarlög um fjarskipti. Jafnframt er innleidd í íslenskan rétt ný fjarskiptalöggjöf ESB. Markmið tilskipana ESB er að draga úr flóknu regluverki fjarskipta og færa það jafnframt í átt til samkeppnisréttar.

Helstu breytingar í frumvarpinu eru að ekki er lengur krafist rekstrarleyfis til að stunda fjarskipti, reglum samkeppnisréttar er beitt við mat á því hvort fyrirtæki hafi markaðsráðandi stöðu, kveðið er á um dreifingu útvarps, heimild er veitt til að gera dreifingu ákveðinna útvarpsdagskráa að skyldu, sett eru ítarlegri ákvæði um vernd notenda fjarskiptaþjónustu, reglur um alþjónustu eru endurbættar og lágmarksréttur notenda styrktur, skilmálar um aðgang að netum og þjónustu eru endurskoðaðir og settar markvissari reglur um nýtingu á aðstöðu.

Nefndin ræddi nokkuð um það hvort rétt væri að kveða á um rétt neytenda um einn reikning vegna fjarskiptaþjónustu. Eftir nánari skoðun er það álit meiri hlutans að heppilegra sé að fjarskiptafyrirtækin komi sér saman um að bjóða upp á slíka þjónustu heldur en að skikka þau til þess með lagaboði, enda er ljóst að slíkt lagaákvæði gæti orðið torvelt í framkvæmd án samvinnu fjarskiptafyrirtækjanna. Meiri hlutinn hvetur því fjarskiptafyrirtækin til að reyna til þrautar að ná samningum sín á milli um þessi mál.

Meiri hlutinn leggur til eina breytingu á frumvarpinu og er hún í samræmi við breytingar tillögu meiri hluta allsherjarnefndar við frumvarp til laga um almannavarnir o.fl.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri breytingu:

Í stað orðanna ,,að beiðni almannavarnaráðs`` í 2. mgr. 72. gr. komi: að beiðni ríkislögreglustjóra, að höfðu samráði við almannavarnaráð.

Magnús Stefánsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Lúðvík Bergvinsson og Jóhann Ársælsson skrifa undir álitið með fyrirvara við breytingartillöguna.

Undir nefndarálitið skrifa auk þess sem hér stendur hv. þm. Hjálmar Árnason, Arnbjörg Sveinsdóttir, Sigríður Ingvarsdóttir, Árni Ragnar Árnason, og hv. þm. Lúðvík Bergvinsson og Jóhann Ársælsson með fyrirvara eins og áður hefur verið getið.