Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Föstudaginn 14. mars 2003, kl. 11:32:12 (5084)

2003-03-14 11:32:12# 128. lþ. 101.18 fundur 610. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# (lækkun gjalds) frv. 19/2003, ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 128. lþ.

[11:32]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil í framhaldi af framsögu hv. þm. láta koma fram þakkir til nefndarformannsins fyrir vinnu að frv. Sérstaklega vil ég þakka honum og nefndinni fyrir þá brtt. sem hér er lögð fram um að fornbílar, þ.e. þeir bílar og ökutæki sem eru 40 ára og eldri, njóti undanþágu hvað aðflutningsgjöld varðar og tel ég að hér sé framfaraspor og komið til móts við þau sjónarmið sem höfðu verið lögð fram í nefndinni. Ég ítreka þakkir mínar.