Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):
Hv. 7. þm. Reykv. hefur beðið um orðið um störf þingsins. Auk hans hafa tveir aðrir kvatt sér hljóðs um störf þingsins. Af þeim ástæðum mun ég gefa þeim orðið í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs en hleypa ráðherrum að til andsvara á milli ef þeir svo kjósa. Þess vegna er ljóst að það verður lítill tími fyrir aðra þingmenn til að taka til máls undir þessum lið enda er ekki gert ráð fyrir nema 20 mínútum til þess að ræða störf þingsins.