Lækkun tekjustofna sveitarfélaga

Mánudaginn 02. desember 2002, kl. 15:13:00 (1917)

2002-12-02 15:13:00# 128. lþ. 43.1 fundur 285#B lækkun tekjustofna sveitarfélaga# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 128. lþ.

[15:13]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég held að í fyrsta lagi sé það ekki staðreynd eða búið að sanna að breytingin skerði tekjur sveitarfélaganna um milljarð þó hún skerði þær eitthvað. Haldinn verður samráðsfundur ríkis og sveitarfélaga á miðvikudagsmorgun. Þetta vandamál verður væntanlega rætt á þeim fundi en það er ekki tekið á því í því samkomulagi sem búið er að gera og náðst hefur milli ríkis og sveitarfélaga um fjármálaleg samskipti á þessu ári.