Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 203. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 206 — 203. mál.
fjármálaráðherra um áhrif lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts úr 100% í 60% til byggjenda íbúðarhúsnæðis vegna vinnu manna á byggingarstað og til eigenda íbúðarhúsnæðis vegna viðhaldsvinnu.
Í þingsályktun, sem samþykkt var á Alþingi 20. maí 2001, var fjármálaráðherra falið að gangast fyrir sérstakri úttekt á áhrifum lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts úr 100% í 60% til byggjenda íbúðarhúsnæðis vegna vinnu manna á byggingarstað og til eigenda íbúðarhúsnæðis vegna viðhaldsvinnu. Í úttekt þessari yrði m.a. lagt mat á hvort lækkun endurgreiðslunnar hefði aukið tekjur ríkissjóðs eins og vonast var til, hvort og/eða hversu mikið svört atvinnustarfsemi á þessu sviði hefði aukist og hvort ástæða væri til þess að hækka endurgreiðsluhlutfallið á nýjan leik og bæta aðgang að endurgreiðslum.
Í kjölfar þingsályktunarinnar var settur á laggirnar starfshópur, skipaður tveimur starfsmönnum fjármálaráðuneytisins og tveimur starfsmönnum frá embætti ríkisskattstjóra. Niðurstaða starfshópsins er skýrsla þessi þar sem farið er yfir þau atriði sem tilgreind eru í þingsályktuninni.
1. Hefur lækkun endurgreiðslunnar aukið tekjur ríkissjóðs eins og vonast var til?
1.1 Forsaga
Í upphafi tók endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði til alls þess virðisaukaskatts sem greiddur var af vinnu manna, en á árunum 1996-1997 var þetta endurgreiðsluhlutfall lækkað í 60%. Þannig var endurgreiðsluhlutfallið lækkað vegna vinnu manna við nýbyggingu íbúðarhúsnæðis hinn 1. júlí 1996 og vegna vinnu manna við endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis hinn 1. janúar 1997.
Með 1. gr. laga nr. 86/1996, um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, var endurgreiðsluhlutfallið fært niður í 60% vegna vinnu manna á byggingarstað. Með 9. gr. laga nr. 149/1996, um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, var síðan endurgreiðsluhlutfallið fært niður í 60% vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald íbúðarhúsnæðis, en samkvæmt ummælum í greinargerð átti fyrri lækkun endurgreiðslunnar einnig að ná til vinnu við viðhald og endurbætur. Í greinargerð með lögum nr. 86/1996 kemur fram að þessi breyting tengist aukinni fjárþörf ríkisins vegna breytinga á lögum nr. 97/1987, um vörugjald. Í greinargerðinni segir að áætlað hafi verið að árið 1996 næmi endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði u.þ.b. 1.100 millj. kr. Með því að færa hlutfallið niður í 60% megi því gera ráð fyrir að endurgreiðsla á virðisaukaskatti af vinnu við íbúðarhúsnæði muni lækka um 440 millj. kr.
Samkvæmt lögskýringargögnum var því ráðgert að með þessari breytingu mundi endurgreiðsla á virðisaukaskatti af vinnu við íbúðarhúsnæði lækka um 440 millj. kr. á ári miðað við árið 1996. Jafnframt var tekið fram að ekki yrði þó um tekjuaukningu fyrir ríkissjóð að ræða því ákveðið hefði verið að fella niður og lækka vörugjöld af ýmsum vörum eins og áður greinir. Þess má geta að 440 millj. kr. á verðlagi ársins 1996 svara til 530 millj. kr. fært á verðlag í nóvember 2001.
1.2 Þróun endurgreiðslna frá 1997
Eins og kemur fram í töflu 1.0 var heildarendurgreiðsla vegna vinnu við íbúðarhúsnæði árið 1996 samtals 1.061 millj. kr. Miðað við lækkun um 40% (úr 100% í 60%) hefði því, að öðru óbreyttu, mátt gera ráð fyrir að árið 1997 næmu heildarendurgreiðslur u.þ.b. 637 millj. kr. (tekjuaukning upp á 424 millj. kr.). Eins og sjá má á töflu 1.0 reyndist heildarendurgreiðsla fyrir árið 1997 nema 602 millj. kr. Milli áranna 1996 og 1997 lækkaði því heildarendurgreiðslan um 459 millj. kr. Samsvarar það 43,3% lækkun á milli ára (var 56,7% frá því sem hún var 1996). Fara heildarendurgreiðslur síðan stighækkandi frá árinu 1997:
Árið 1997 602 millj. kr.
Árið 1998 702 millj. kr.
Árið 1999 776 millj. kr.
Árið 2000 1.008 millj. kr.
Samkvæmt þessum tölum má draga þá ályktun að lækkun endurgreiðslunnar hafi aukið tekjur ríkissjóðs í samræmi við það sem vonast var til og ráðgert í greinargerð með lögum nr. 86/1996.
Eins og kemur fram í kafla 3 í skýrslu þessari má með sams konar reikningsaðferðum komast að þeirri niðurstöðu að miðað við að árið 2000 hafi heildarfjárhæð endurgreiðslu numið 1.008 millj. kr. mundi heildarfjárhæð endurgreiðslu með 100% endurgreiðslu-hlutfalli nema 1.680 millj. kr. Tekjutap ríkissjóðs, í formi aukinna endurgreiðslna (100% í stað 60%), yrði því 672 millj. kr. vegna ársins 2000 samkvæmt þessum forsendum.
1.3 Skýring á töflum
Á meðfylgjandi töflum er vinnu við íbúðarhúsnæði skipt í eftirtalda þrjá þætti:
RSK 10.18 e, sem tekur til endurgreiðslna vegna endurbóta og viðhalds íbúðarhúsnæðis.
RSK 10.18 N, sem tekur til endurgreiðslna vegna nýbyggingar íbúðarhúsnæðis til eigin nota húsbyggjanda.
RSK 10.17, sem tekur til endurgreiðslna vegna nýbyggingar íbúðarhúsnæðis til sölu eða leigu.
Allar fjárhæðir í meðfylgjandi töflum eru í þúsundum króna.
Myndir sem vísað er í eru birtar aftast í skýrslu þessari.
Síðbúin endurgreiðslubeiðni er afgreidd með beiðnum fyrir það tímabil sem er til meðferðar þegar hin síðbúna beiðni kemur fram. Þær upplýsingar um fjárhæðir endurgreiðslna og fjölda þeirra, sem fram koma í meðfylgjandi töflum, eru því ekki endanlegar þar sem enn geta komið fram endurgreiðslubeiðnir vegna framkvæmda á umræddum árum.
Tafla 1.0. Fjárhæð endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna við viðhald, endurbætur og nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
2. Hefur svört atvinnustarfsemi aukist á þessu sviði og þá hversu mikið?
Af ýmsum ástæðum er erfitt að leggja mat á hvort svört atvinnustarfsemi hafi aukist á þessu sviði og þá hversu mikið. Leggja má fram rök sem leiða líkur að því að fækkun á endurgreiðslubeiðnum frá 1996 (sjá töflur 2.0 og 2.1) bendi til þess að svört atvinnustarfsemi hafi aukist á þessu sviði. Bent hefur verið á að endurgreiðsluheimildin hafi haft nokkuð að segja í baráttunni gegn svartri atvinnustarfsemi og að þau áhrif hafi eitthvað minnkað við lækkun endurgreiðsluhlutfallsins.
Aftur á móti bendir stöðug hækkun heildarendurgreiðslufjárhæða frá 1997 ekki til þess að svört atvinnustarfsemi hafi aukist frá 1997 vegna lækkaðs endurgreiðsluhlutfalls (sjá töflu 1.0 og mynd 1).
Eins og kemur fram í eftirfarandi töflum hefur fjárhæð endurgreiðslna og fjöldi endurgreiðslubeiðna ekki haldist í hendur frá 1997. Skráðum endurgreiðslubeiðnum og aðilum sem sækja um hefur fækkað en fjárhæð endurgreiðslna hækkað. Samanburður á þessari þróun er sýndur á mynd 7.
Frá því að endurgreiðsluhlutfallið var lækkað niður í 60% hefur eftifarandi þróun átt sér stað:
a) Á árabilinu 1997 til 2000 hefur meðaltalsendurgreiðsla, per endurgreiðslubeiðni, hækkað um 21,8% (sjá töflu 3.0).
b) Aðilum sem sótt hafa um endurgreiðslu hefur fækkað um 20,2% á milli áranna 1997 til 2000 (sjá töflu 2.0).
c) Skráðum endurgreiðslubeiðnum hefur fækkað um 36,1% á milli áranna 1997 til 2000 (sjá töflu 2.1).
d) Fjárhæð endurgreiðslna hefur hækkað um 53,7% á milli áranna 1997 til 2000 (sjá töflu 1.0). Sú tala er miðuð við fast verðlag nóvember 2001. Ef tekið er verðlag árs 1997 annars vegar og 2000 hins vegar hefur fjárhæð endurgreiðslna hækkað um 67,3% á tímabilinu.
e) Íbúðum (og rúmmetrum) í byggingu hefur fækkað nokkuð á tímabilinu 1997 til 2000 (sjá töflu 3.3).
Af þessum tölum má ráða að nú sækja færri aðilar um hærri endurgreiðslufjárhæðir en áður. Á tímabilinu frá 1997 til 2000 hefur aðilum á virðisaukaskattsskrá, starfandi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, fjölgað um 707 (sjá töflu 2.2). Skýringar á þessari þróun kunna að vera margþættar. Færa má rök fyrir því að einstaklingar sæki ekki endurgreiðslurétt sinn í sama mæli og fyrr þar sem hlutfallið sé nú lægra, þeim sé e.t.v. ekki nægilega kunnugt um endurgreiðslurétt sinn og að aðgengi að endurgreiðslum sé ekki nægilegt, sérstaklega með tilliti til einstaklinga sem ekki eru í virðisaukaskattsskyldum rekstri. Fækkun íbúða í byggingu kann einnig að skýra fækkun beiðna um endurgreiðslu.
Þess má geta að fækkun á skráðum beiðnum um endurgreiðslu á tímabilinu 1997 til 2000 hefur eingöngu verið í flokknum RSK 10.18e (endurbætur og viðhald) en beiðnum á sviði nýbygginga (RSK 10.18 N og RSK 10.17) hefur fjölgað.
Að öðru leyti er erfitt að draga aðrar ályktanir af meðfylgjandi töflum en að með hliðsjón af því að endurgreiðslur hafa aukist um 53,7% á árunum 1997 til 2000 sé ekki unnt að fullyrða að svört atvinnustarfsemi hafi aukist í verulegu mæli á þessu tímabili þrátt fyrir fækkun endurgreiðslubeiðna. Hafa ber hliðsjón af því að á árunum 1997 til 1999 hafa útlán í húsbréfakerfinu til nýbygginga og endurbóta aukist um 43,6% (sjá töflu 3.4).
Þess má geta að í skýrslu nefndar, sem skipuð var af fjármálaráðherra, um framkvæmd virðisaukaskatts frá mars 2000 er m.a. fjallað um skattsvik í virðisaukaskatti. Kemst nefndin að þeirri niðurstöðu (bls. 83) að „ undanskot í virðisaukaskatti hafi heldur minnkað á síðustu árum. Hefur því nokkuð áunnist í baráttunni gegn skattsvikum. Gott árferði undanfarin ár hefur án efa haft eitthvað að segja en ekki síður telur nefndin að góð skattframkvæmd og vönduð vinnubrögð skattyfirvalda skipti þar máli. Kemur þar margt til, breytt skipulag skattkerfisins með aukinni áherslu á skatteftirlit, aukin áhersla á virðisaukaskattseiningar á skattstofum og stofnun embættis skattrannsóknarstjóra ríkisins.“
Við gerð skýrslu þessarar var leitað til skattrannsóknarstjóra ríkisins um mat á því hvort svört atvinnustarfsemi hefði aukist á þessu sviði og hafði embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins engar athugasemdir fram að færa við efni skýrslunnar en tók undir það sem að framan greinir.
Tafla 2.0 Fjöldi aðila sem sótt hafa um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna viðhalds, endurbóta eða nýbyggingar íbúðarhúsnæðis.
Tafla 2.1 Fjöldi skráðra endurgreiðslubeiðna vegna viðhalds, endurbóta eða nýbyggingar íbúðarhúsnæðis.
Tafla 2.2 Fjöldi aðila á virðisaukaskattsskrá starfandi í deild 45 (byggingar-starfsemi og mannvirkjagerð).
Tafla 2.3 Virðisaukaskattsskyld velta árin 1996 til 2000 í deild 45 (byggingar-starfsemi) í þús. kr.
3. Er ástæða til þess að hækka endurgreiðsluhlutfallið á nýjan leik og bæta aðgang að endurgreiðslum?
3.1 Hækkun endurgreiðsluhlutfalls
Ef endurgreiðsluhlutfallið yrði fært í 100% á nýjan leik er erfitt að áætla með nákvæmni hvert tekjutap ríkissjóðs yrði. Ef notaðar eru sams konar reikningsaðferðir og í greinargerð með lögum nr. 86/1996 má þó lauslega áætla að miðað við að árið 2000 hafi heildarfjárhæð endurgreiðslu numið 1.008 millj. kr. mundi heildarfjárhæð endurgreiðslu með 100% endurgreiðsluhlutfalli nema 1.680 millj. kr. Tekjutap ríkissjóðs, í formi aukinna endurgreiðslna, yrði því 672 millj. kr. vegna ársins 2000 samkvæmt þessum forsendum.
Að sjálfsögðu spila fleiri þættir inn í mat á tekjutapi ríkissjóðs, t.d. áhrif breytingarinnar á svarta atvinnustarfsemi í byggingariðnaði og bætt skattskil. Upphaflega var endurgreiðslan sett á þar sem ljóst var að full skattskylda á þessu sviði hefði í för með sér hækkun á byggingarkostnaði og þar með byggingarvísitölu. Til að koma í veg fyrir það og til að halda verðbólgudraugnum í skefjum var því brugðið á það ráð að setja endurgreiðsluákvæði inn í lögin.
Hafa ber í huga að hægt er að grípa til annarra úrræða til að berjast á móti svartri atvinnustarfsemi en að auka endugreiðsluhlutfallið. Sem dæmi um það má nefna aukið fjármagn til skatteftirlits.
Ákvörðun þess efnis hvort breyta skuli endurgreiðsluhlutfallinu er að mati starfshópsins fyrst og fremst pólitísks eðlis. Starfshópurinn bendir á að þó svo að skráðum endurgreiðslubeiðnum hafi fækkað frá 1997 hafa heildarendurgreiðslur frá sama tíma hækkað. Meðalendurgreiðslur pr. kennitölu hafa einnig hækkað á þessum tíma sem og meðalendurgreiðslur pr. beiðni (sjá töflur 3.0 og 3.1). Eins og fyrr hefur verið getið benda þær staðreyndir ekki til þess að svört atvinnustarfsemi hafi aukist á þessu sviði frá 1997.
Tafla 3.0 Meðaltalsendurgreiðsla pr. endurgreiðslubeiðni vegna virðisaukaskatts af vinnu við viðhald, endurbætur og nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Tafla 3.1 Meðalendurgreiðsla virðisaukaskatts pr. kennitölu vegna vinnu við viðhald, endurbætur og nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
3.2 Bætt aðgengi að endurgreiðslum
Í áðurgreindri skýrslu ráðherraskipaðrar nefndar um framkvæmd virðisaukaskatts (mars 2000) kemur fram að stytta megi afgreiðslutíma beiðna um endurgreiðslu virðisaukaskatts sem eigendur íbúðarhúsnæðis hafa greitt vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess. Í flestum tilvikum sé um að ræða framkvæmdir verktaka sem standa yfir í skamman tíma og gefinn er út reikningur fyrir við lok verks. Sömu forsendur fyrir því að binda beiðnir og afgreiðslu þeirra við uppgjörstímabil virðisaukaskatts eru ekki til staðar varðandi þessar endurgreiðslur eins og þegar um nýbyggingar er að ræða. Vafalaust eru til íbúðareigendur sem telja það ekki ómaksins vert að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði þegar reikningsfjárhæðir eru lágar og afgreiðslutíminn eins langur og hann er.
Í samræmi við framangreint var vorið 2002 gerð breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. lög nr. 64/2002, þar sem aðgengi að endurgreiðslum vegna vinnu við íbúðarhúsnæði var bætt með því að stytta afgreiðslutíma beiðna um endurgreiðslur virðisaukaskatts sem eigendur íbúðarhúsnæðis hafa greitt vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess. Með breytingunni var bætt við nýjum málslið á eftir 3. málsl. 2. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, svohljóðandi: Endurgreiðsla vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald skal gerð á grundvelli framlagðra reikninga eins fljótt og auðið er, þó aldrei síðar en 14 dögum eftir að skattstjóra barst erindið.
Tafla 3.2 Sundurliðun byggingarvísitölu (undirvísitölur) frá janúar 1996.
Ár (staða í janúar) 1996 1997 1998 1999 2000 2001 Hækkun
'96-'01
Vinnuliðir, alls 181,4 206,6 219,1 228,5 237,0 246,1 35,67%
Efnisliðir, alls 222,7 225,3 228,6 229,0 230,8 233,8 4,98%
Annað, alls 203,6 210,5 217,1 223,5 230,0 244,5 20,09%
Vísitalan alls 205,5 218,0 225,9 231,2 236,7 245,1 19,27%
Tafla 3.3 Bygging íbúðarhúsa á öllu landinu árin 1990-2000, fjöldi og rúmmetrar.
Heimild: Þjóðhagsstofnun
Tafla 3.4 Fjárhæðir sem einstaklingar fengu lánaðar í húsbréfakerfinu til nýbygginga og endurbóta á árunum 1990-1999.
Lánum til nýbygginga er skipt í tvo hluta; annars vegar lán sem veitt eru beint til einstaklinga og hins vegar lán sem upphaflega eru veitt framkvæmdaraðilum (bygginga- fyrirtækjum) sem svo einstaklingar yfirtaka við sölu til þeirra.
Ár Lánaflokkar Einstaklingar Framkvæmdaraðilar Samtals p. hvert ár
1990 Nýbyggingar 65.528.664 10.000.000 75.528.664
1991 Nýbyggingar 2.823.377.071 181.158.804 3.004.535.875
1992 Nýbyggingar 2.957.994.495 374.550.542 3.332.545.037
1992 Viðb./Endurb. 91.164.083 91.164.083
1993 Nýbyggingar 2.475.528.655 740.024.657 3.215.553.312
1993 Viðb./Endurb. 283.439.164 283.439.164
1994 Nýbyggingar 3.352.290.075 969.794.478 4.322.084.553
1994 Viðb./Endurb. 329.473.638 329.473.638
1995 Nýbyggingar 2.973.174.890 1.089.811.224 4.062.986.114
1995 Viðb./Endurb. 234.160.971 234.160.971
1996 Nýbyggingar 3.168.503.786 1.137.400.191 4.305.903.977
1996 Viðb./Endurb. 248.941.194 248.941.194
1997 Nýbyggingar 3.870.640.639 1.217.084.307 5.087.724.946
1997 Viðb./Endurb. 312.542.712 312.542.712
1998 Nýbyggingar 4.836.419.862 1.064.577.789 5.900.997.651
1998 Viðb./Endurb. 363.815.828 363.815.828
1999 Nýbyggingar 6.205.850.736 1.113.372.460 7.319.223.196
1999 Viðb./Endurb. 437.660.640 437.660.640
Samtals frá 1990-99 35.030.507.105 7.897.774.452 42.928.281.557
(Viðb./Endurb. = Viðbyggingar og endurbætur).
Upphæðir eru í krónum. Listinn greinir raunverulegar lánveitingar eins og þær voru á hverjum tíma og má því segja að upphæðir séu tilgreindar á því verðlagi sem þá gilti.
Heimild: Íbúðalánasjóður.
Mynd 1. Fjárhæð endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna við viðhald, endurbætur og nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Mynd 2. Fjöldi aðila sem sótt hafa um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við viðhald, endurbætur eða nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Mynd 3. Fjöldi skráðra endurgreiðslubeiðna vegna vinnu við viðhald, endurbætur eða nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Mynd 4. Meðalendurgreiðsla per endurgreiðslubeiðni.
Mynd 5. Fjöldi gjaldenda per atvinnugrein.
Mynd 6. Meðalendurgreiðsla virðisaukaskatts miðað við kennitölu.
Mynd 7. Fjárhæð endurgreiðslu og fjöldi endurgreiðslubeiðna.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 206 — 203. mál.
Skýrsla
fjármálaráðherra um áhrif lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts úr 100% í 60% til byggjenda íbúðarhúsnæðis vegna vinnu manna á byggingarstað og til eigenda íbúðarhúsnæðis vegna viðhaldsvinnu.
(Lögð fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002–2003.)

|
Ár
|
RSK 10.18e
|
RSK 10.18N
|
RSK 10.17
|
Samtals
|
Fært á verðlag nóvember 2001 |
|
1990
|
175.685 | 180.019 | 765.796 | 1.121.500 | 1.688.370 |
|
1991
|
235.189 | 229.369 | 766.848 | 1.231.406 | 1.722.260 |
|
1992
|
268.738 | 255.585 | 673.229 | 1.197.553 | 1.658.978 |
|
1993
|
263.311 | 169.328 | 622.093 | 1.054.732 | 1.413.319 |
|
1994
|
292.077 | 138.628 | 610.530 | 1.041.234 | 1.370.705 |
|
1995
|
295.193 | 131.423 | 611.932 | 1.038.548 | 1.327.174 |
|
1996
|
444.425 | 116.927 | 500.052 | 1.061.404 | 1.277.291 |
|
1997
|
169.834 | 57.222 | 375.164 | 602.220 | 699.034 |
|
1998
|
179.489 | 69.707 | 453.606 | 702.803 | 796.733 |
|
1999
|
196.724 | 77.760 | 502.115 | 776.600 | 860.299 |
|
2000
|
217.074 | 123.172 | 667.462 | 1.007.708 | 1.074.533 |
|
|
|||||
|
Samtals
|
2.737.741 | 1.549.139 | 6.548.828 | 10.835.708 | 13.888.697 |
2. Hefur svört atvinnustarfsemi aukist á þessu sviði og þá hversu mikið?
Af ýmsum ástæðum er erfitt að leggja mat á hvort svört atvinnustarfsemi hafi aukist á þessu sviði og þá hversu mikið. Leggja má fram rök sem leiða líkur að því að fækkun á endurgreiðslubeiðnum frá 1996 (sjá töflur 2.0 og 2.1) bendi til þess að svört atvinnustarfsemi hafi aukist á þessu sviði. Bent hefur verið á að endurgreiðsluheimildin hafi haft nokkuð að segja í baráttunni gegn svartri atvinnustarfsemi og að þau áhrif hafi eitthvað minnkað við lækkun endurgreiðsluhlutfallsins.
Aftur á móti bendir stöðug hækkun heildarendurgreiðslufjárhæða frá 1997 ekki til þess að svört atvinnustarfsemi hafi aukist frá 1997 vegna lækkaðs endurgreiðsluhlutfalls (sjá töflu 1.0 og mynd 1).
Eins og kemur fram í eftirfarandi töflum hefur fjárhæð endurgreiðslna og fjöldi endurgreiðslubeiðna ekki haldist í hendur frá 1997. Skráðum endurgreiðslubeiðnum og aðilum sem sækja um hefur fækkað en fjárhæð endurgreiðslna hækkað. Samanburður á þessari þróun er sýndur á mynd 7.
Frá því að endurgreiðsluhlutfallið var lækkað niður í 60% hefur eftifarandi þróun átt sér stað:
a) Á árabilinu 1997 til 2000 hefur meðaltalsendurgreiðsla, per endurgreiðslubeiðni, hækkað um 21,8% (sjá töflu 3.0).
b) Aðilum sem sótt hafa um endurgreiðslu hefur fækkað um 20,2% á milli áranna 1997 til 2000 (sjá töflu 2.0).
c) Skráðum endurgreiðslubeiðnum hefur fækkað um 36,1% á milli áranna 1997 til 2000 (sjá töflu 2.1).
d) Fjárhæð endurgreiðslna hefur hækkað um 53,7% á milli áranna 1997 til 2000 (sjá töflu 1.0). Sú tala er miðuð við fast verðlag nóvember 2001. Ef tekið er verðlag árs 1997 annars vegar og 2000 hins vegar hefur fjárhæð endurgreiðslna hækkað um 67,3% á tímabilinu.
e) Íbúðum (og rúmmetrum) í byggingu hefur fækkað nokkuð á tímabilinu 1997 til 2000 (sjá töflu 3.3).
Af þessum tölum má ráða að nú sækja færri aðilar um hærri endurgreiðslufjárhæðir en áður. Á tímabilinu frá 1997 til 2000 hefur aðilum á virðisaukaskattsskrá, starfandi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, fjölgað um 707 (sjá töflu 2.2). Skýringar á þessari þróun kunna að vera margþættar. Færa má rök fyrir því að einstaklingar sæki ekki endurgreiðslurétt sinn í sama mæli og fyrr þar sem hlutfallið sé nú lægra, þeim sé e.t.v. ekki nægilega kunnugt um endurgreiðslurétt sinn og að aðgengi að endurgreiðslum sé ekki nægilegt, sérstaklega með tilliti til einstaklinga sem ekki eru í virðisaukaskattsskyldum rekstri. Fækkun íbúða í byggingu kann einnig að skýra fækkun beiðna um endurgreiðslu.
Þess má geta að fækkun á skráðum beiðnum um endurgreiðslu á tímabilinu 1997 til 2000 hefur eingöngu verið í flokknum RSK 10.18e (endurbætur og viðhald) en beiðnum á sviði nýbygginga (RSK 10.18 N og RSK 10.17) hefur fjölgað.
Að öðru leyti er erfitt að draga aðrar ályktanir af meðfylgjandi töflum en að með hliðsjón af því að endurgreiðslur hafa aukist um 53,7% á árunum 1997 til 2000 sé ekki unnt að fullyrða að svört atvinnustarfsemi hafi aukist í verulegu mæli á þessu tímabili þrátt fyrir fækkun endurgreiðslubeiðna. Hafa ber hliðsjón af því að á árunum 1997 til 1999 hafa útlán í húsbréfakerfinu til nýbygginga og endurbóta aukist um 43,6% (sjá töflu 3.4).
Þess má geta að í skýrslu nefndar, sem skipuð var af fjármálaráðherra, um framkvæmd virðisaukaskatts frá mars 2000 er m.a. fjallað um skattsvik í virðisaukaskatti. Kemst nefndin að þeirri niðurstöðu (bls. 83) að „ undanskot í virðisaukaskatti hafi heldur minnkað á síðustu árum. Hefur því nokkuð áunnist í baráttunni gegn skattsvikum. Gott árferði undanfarin ár hefur án efa haft eitthvað að segja en ekki síður telur nefndin að góð skattframkvæmd og vönduð vinnubrögð skattyfirvalda skipti þar máli. Kemur þar margt til, breytt skipulag skattkerfisins með aukinni áherslu á skatteftirlit, aukin áhersla á virðisaukaskattseiningar á skattstofum og stofnun embættis skattrannsóknarstjóra ríkisins.“
Við gerð skýrslu þessarar var leitað til skattrannsóknarstjóra ríkisins um mat á því hvort svört atvinnustarfsemi hefði aukist á þessu sviði og hafði embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins engar athugasemdir fram að færa við efni skýrslunnar en tók undir það sem að framan greinir.
Tafla 2.0 Fjöldi aðila sem sótt hafa um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna viðhalds, endurbóta eða nýbyggingar íbúðarhúsnæðis.
|
Ár
|
RSK 10.18E | RSK 10.18 N | RSK 10.17 | Samtals |
|
1990
|
2.505 | 1.157 | 275 | 3.937 |
|
1991
|
3.422 | 1.283 | 284 | 4.989 |
|
1992
|
3.628 | 1.095 | 267 | 4.990 |
|
1993
|
3.454 | 901 | 241 | 4.596 |
|
1994
|
3.792 | 833 | 245 | 4.870 |
|
1995
|
3.888 | 857 | 259 | 5.004 |
|
1996
|
4.154 | 808 | 255 | 5.217 |
|
1997
|
2.783 | 538 | 214 | 3.535 |
|
1998
|
2.495 | 535 | 208 | 3.238 |
|
1999
|
2.201 | 559 | 214 | 2.974 |
|
2000
|
2.100 | 613 | 228 | 2.941 |
| Samtals | 34.422 | 9.179 | 2.690 | 46.291 |
| Ár | RSK 10.18 E | RSK 10.18 N | RSK 10.17 | Samtals |
|
1990
|
3.614 | 1.934 | 1.256 | 6.804 |
|
1991
|
5.464 | 2.136 | 1.307 | 8.907 |
|
1992
|
6.024 | 1.785 | 1.241 | 9.050 |
|
1993
|
6.851 | 1.410 | 1.130 | 9.391 |
|
1994
|
8.329 | 1.289 | 1.169 | 10.787 |
|
1995
|
8.620 | 1.325 | 1.239 | 11.184 |
|
1996
|
9.498 | 1.341 | 1.313 | 12.152 |
|
1997
|
6.187 | 760 | 1.121 | 8.068 |
|
1998
|
6.029 | 744 | 1.366 | 8.139 |
|
1999
|
4.706 | 857 | 1.463 | 7.026 |
|
2000
|
3.438 | 953 | 1.536 | 5.927 |
| Samtals | 68.760 | 14.534 | 14.141 | 97.435 |
Tafla 2.2 Fjöldi aðila á virðisaukaskattsskrá starfandi í deild 45 (byggingar-starfsemi og mannvirkjagerð).
| Atvinnugrein |
1990
|
1991 | 1992 | 1993 | 1994 | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 |
| Húsbyggingar og mannvirkjag. | 799 | 904 | 1.020 | 1.158 | 1.262 | 1.400 | 1.656 | 1.799 | 2.071 | 2.286 | 2.506 |
| Raf- og boðlagnir | 320 | 335 | 376 | 413 | 443 | 477 | 533 | 559 | 616 | 651 | 646 |
| Einangrun | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 3 | |||||
| Pípulagnir | 216 | 232 | 245 | 270 | 297 | 314 | 335 | 364 | 363 | 371 | 388 |
| Múrverk | 237 | 255 | 258 | 274 | 294 | 322 | 344 | 341 | 361 | 358 | 370 |
| Húsasmíði og uppsetning innr. | 668 | 749 | 809 | 851 | 921 | 998 | 1066 | 1122 | 1154 | 1165 | 1141 |
| Lagning gólf- og veggefna | 78 | 82 | 91 | 96 | 95 | 100 | 97 | 107 | 119 | 124 | 118 |
| Málningarvinna | 206 | 239 | 273 | 289 | 324 | 357 | 406 | 423 | 460 | 474 | 493 |
| Glerjun | 4 | 4 | 6 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 13 | 11 | 11 |
| Annar frágangur bygginga | 14 | 17 | 16 | 17 | 16 | 14 | 19 | 28 | 38 | 37 | 40 |
Tafla 2.3 Virðisaukaskattsskyld velta árin 1996 til 2000 í deild 45 (byggingar-starfsemi) í þús. kr.
| Atvinnugrein |
1996
|
1997 | 1998 | 1999 | 2000 |
Samtals
|
|
|
1.564.840
|
2.400.075 | 3.480.328 | 3.327.916 | 3.055.846 | 13.829.005 |
| Boranir v/ bygginga og mannv. |
28.245
|
60.298 | 76.352 | 84.478 | 73.137 | 322.510 |
| Húsbyggingar og mannvirkjag. |
21.140.416
|
28.194.909 | 37.211.158 | 40.871.319 | 44.615.541 | 172.033.343 |
| Raf- og boðl.; starfsemi rafverkt. |
3.848.690
|
4.749.349 | 6.816.917 | 6.926.971 | 8.363.533 | 30.705.460 |
| Einangrun |
3.714
|
5.579 | 5.325 | 9.044 | 8.767 | 32.429 |
| Pípulagnir |
1.827.268
|
2.235.578 | 2.692.644 | 3.183.621 | 3.761.662 | 13.700.773 |
| Múrverk |
1.095.644
|
1.274.094 | 1.369.375 | 1.589.506 | 1.684.739 | 7.013.358 |
| Húsasmíði og uppsetning innr. |
2.705.750
|
3.127.356 | 3.817.615 | 3.950.178 | 4.142.903 | 17.743.802 |
| Lagning gólf- og veggefna |
651.104
|
652.599 | 758.929 | 671.268 | 725.568 | 3.459.468 |
| Málningarvinna |
1.637.559
|
1.911.456 | 2.187.810 | 2.442.095 | 2.833.214 | 11.012.134 |
| Glerjun |
13.527
|
21.115 | 28.503 | 43.682 | 62.421 | 169.248 |
| Annar frágangur bygginga |
158.066
|
145.039 | 228.939 | 327.990 | 536.992 | 1.397.026 |
| Leiga á vinnuv.m/stjórnanda |
3.000.002
|
3.780.914 | 4.343.694 | 4.624.905 | 5.607.261 | 21.356.776 |
|
|
||||||
| Samtals |
37.674.827
|
48.558.363 | 63.017.588 | 68.052.974 | 75.471.585 | 292.775.332 |
3. Er ástæða til þess að hækka endurgreiðsluhlutfallið á nýjan leik og bæta aðgang að endurgreiðslum?
3.1 Hækkun endurgreiðsluhlutfalls
Ef endurgreiðsluhlutfallið yrði fært í 100% á nýjan leik er erfitt að áætla með nákvæmni hvert tekjutap ríkissjóðs yrði. Ef notaðar eru sams konar reikningsaðferðir og í greinargerð með lögum nr. 86/1996 má þó lauslega áætla að miðað við að árið 2000 hafi heildarfjárhæð endurgreiðslu numið 1.008 millj. kr. mundi heildarfjárhæð endurgreiðslu með 100% endurgreiðsluhlutfalli nema 1.680 millj. kr. Tekjutap ríkissjóðs, í formi aukinna endurgreiðslna, yrði því 672 millj. kr. vegna ársins 2000 samkvæmt þessum forsendum.
Að sjálfsögðu spila fleiri þættir inn í mat á tekjutapi ríkissjóðs, t.d. áhrif breytingarinnar á svarta atvinnustarfsemi í byggingariðnaði og bætt skattskil. Upphaflega var endurgreiðslan sett á þar sem ljóst var að full skattskylda á þessu sviði hefði í för með sér hækkun á byggingarkostnaði og þar með byggingarvísitölu. Til að koma í veg fyrir það og til að halda verðbólgudraugnum í skefjum var því brugðið á það ráð að setja endurgreiðsluákvæði inn í lögin.
Hafa ber í huga að hægt er að grípa til annarra úrræða til að berjast á móti svartri atvinnustarfsemi en að auka endugreiðsluhlutfallið. Sem dæmi um það má nefna aukið fjármagn til skatteftirlits.
Ákvörðun þess efnis hvort breyta skuli endurgreiðsluhlutfallinu er að mati starfshópsins fyrst og fremst pólitísks eðlis. Starfshópurinn bendir á að þó svo að skráðum endurgreiðslubeiðnum hafi fækkað frá 1997 hafa heildarendurgreiðslur frá sama tíma hækkað. Meðalendurgreiðslur pr. kennitölu hafa einnig hækkað á þessum tíma sem og meðalendurgreiðslur pr. beiðni (sjá töflur 3.0 og 3.1). Eins og fyrr hefur verið getið benda þær staðreyndir ekki til þess að svört atvinnustarfsemi hafi aukist á þessu sviði frá 1997.
Tafla 3.0 Meðaltalsendurgreiðsla pr. endurgreiðslubeiðni vegna virðisaukaskatts af vinnu við viðhald, endurbætur og nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
|
Ár
|
RSK 10.18 E | RSK 10.18 N | RSK 10.17 | Samtals |
|
1990
|
48.612 | 93.081 | 609.710 | 751.404 |
|
1991
|
43.043 | 107.382 | 586.724 | 737.150 |
|
1992
|
44.611 | 143.185 | 542.489 | 730.286 |
|
1993
|
38.434 | 120.091 | 550.525 | 709.050 |
|
1994
|
35.067 | 107.547 | 522.267 | 664.881 |
|
1995
|
34.245 | 99.187 | 493.892 | 627.324 |
|
1996
|
46.791 | 87.194 | 380.847 | 514.832 |
|
1997
|
27.450 | 75.293 | 334.669 | 437.412 |
|
1998
|
29.771 | 93.693 | 332.069 | 455.533 |
|
1999
|
41.803 | 90.736 | 343.209 | 475.748 |
|
2000
|
63.140 | 129.246 | 434.545 | 626.931 |
|
Samtals
|
452.969 | 1.146.633 | 5.130.947 | 6.730.549 |
Tafla 3.1 Meðalendurgreiðsla virðisaukaskatts pr. kennitölu vegna vinnu við viðhald, endurbætur og nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
|
Ár
|
RSK 10.18 E | RSK 10.18 N | RSK 10.17 | Samtals |
|
1990
|
70.134 | 155.591 | 2.784.714 | 3.010.438 |
|
1991
|
68.729 | 178.775 | 2.700.169 | 2.947.673 |
|
1992
|
74.073 | 233.411 | 2.521.458 | 2.828.942 |
|
1993
|
76.234 | 187.933 | 2.581.299 | 2.845.466 |
|
1994
|
77.025 | 166.420 | 2.491.958 | 2.735.402 |
|
1995
|
75.924 | 153.352 | 2.362.673 | 2.591.949 |
|
1996
|
106.987 | 144.711 | 1.960.989 | 2.212.688 |
|
1997
|
61.025 | 106.361 | 1.753.104 | 1.920.491 |
|
1998
|
71.939 | 130.294 | 2.180.800 | 2.383.034 |
|
1999
|
89.380 | 139.106 | 2.346.332 | 2.574.817 |
|
2000
|
103.369 | 200.933 | 2.927.463 | 3.231.764 |
|
Samtals
|
874.819 | 1.796.888 | 26.610.959 | 29.282.665 |
3.2 Bætt aðgengi að endurgreiðslum
Í áðurgreindri skýrslu ráðherraskipaðrar nefndar um framkvæmd virðisaukaskatts (mars 2000) kemur fram að stytta megi afgreiðslutíma beiðna um endurgreiðslu virðisaukaskatts sem eigendur íbúðarhúsnæðis hafa greitt vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess. Í flestum tilvikum sé um að ræða framkvæmdir verktaka sem standa yfir í skamman tíma og gefinn er út reikningur fyrir við lok verks. Sömu forsendur fyrir því að binda beiðnir og afgreiðslu þeirra við uppgjörstímabil virðisaukaskatts eru ekki til staðar varðandi þessar endurgreiðslur eins og þegar um nýbyggingar er að ræða. Vafalaust eru til íbúðareigendur sem telja það ekki ómaksins vert að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði þegar reikningsfjárhæðir eru lágar og afgreiðslutíminn eins langur og hann er.
Í samræmi við framangreint var vorið 2002 gerð breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. lög nr. 64/2002, þar sem aðgengi að endurgreiðslum vegna vinnu við íbúðarhúsnæði var bætt með því að stytta afgreiðslutíma beiðna um endurgreiðslur virðisaukaskatts sem eigendur íbúðarhúsnæðis hafa greitt vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess. Með breytingunni var bætt við nýjum málslið á eftir 3. málsl. 2. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, svohljóðandi: Endurgreiðsla vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald skal gerð á grundvelli framlagðra reikninga eins fljótt og auðið er, þó aldrei síðar en 14 dögum eftir að skattstjóra barst erindið.
Tafla 3.2 Sundurliðun byggingarvísitölu (undirvísitölur) frá janúar 1996.
Ár (staða í janúar) 1996 1997 1998 1999 2000 2001 Hækkun
'96-'01
Vinnuliðir, alls 181,4 206,6 219,1 228,5 237,0 246,1 35,67%
Efnisliðir, alls 222,7 225,3 228,6 229,0 230,8 233,8 4,98%
Annað, alls 203,6 210,5 217,1 223,5 230,0 244,5 20,09%
Vísitalan alls 205,5 218,0 225,9 231,2 236,7 245,1 19,27%
Tafla 3.3 Bygging íbúðarhúsa á öllu landinu árin 1990-2000, fjöldi og rúmmetrar.
| Ár |
Í byggingu 1. jan |
Byrjanir |
|
Fullgert |
|
Í byggingu 31. des |
|||
|
|
Fjöldi íbúða | þús. m³ | Fjöldi | þús. m³ | Fjöldi | þús. m³ | Fjöldi | þús. m³ | |
|
1990
|
3.667 | 1.805 | 1.929 | 822 | 1.758 | 783 | 3.838 | 1.844 | |
|
1991
|
3.838 | 1.844 | 1.470 | 685 | 1.611 | 698 | 3.697 | 1.831 | |
|
1992
|
3.697 | 1.831 | 1.495 | 645 | 1.600 | 745 | 3.592 | 1.731 | |
|
1993
|
3.592 | 1.731 | 1.375 | 568 | 1.604 | 702 | 3.363 | 1.597 | |
|
1994
|
3.363 | 1.597 | 1.350 | 556 | 1.714 | 744 | 3.000 | 1.409 | |
|
1995
|
3.000 | 1.409 | 1.234 | 500 | 1.236 | 540 | 2.998 | 1.370 | |
|
1996
|
2.998 | 1.370 | 1.280 | 519 | 1.620 | 672 | 2.657 | 1.216 | |
|
1997
|
2.657 | 1.216 | 1.165 | 491 | 1.369 | 608 | 2.453 | 1.098 | |
|
1998
|
2.453 | 1.098 | 1.016 | 463 | 1.427 | 639 | 2.042 | 922 | |
|
1999
|
2.042 | 922 | 1.266 | 577 | 1.381 | 624 | 1.927 | 876 | |
|
2000
|
1.927 | 876 | 1.643 | 755 | 1.258 | 572 | 2.312 | 1.059 |
Heimild: Þjóðhagsstofnun
Tafla 3.4 Fjárhæðir sem einstaklingar fengu lánaðar í húsbréfakerfinu til nýbygginga og endurbóta á árunum 1990-1999.
Lánum til nýbygginga er skipt í tvo hluta; annars vegar lán sem veitt eru beint til einstaklinga og hins vegar lán sem upphaflega eru veitt framkvæmdaraðilum (bygginga- fyrirtækjum) sem svo einstaklingar yfirtaka við sölu til þeirra.
Ár Lánaflokkar Einstaklingar Framkvæmdaraðilar Samtals p. hvert ár
1990 Nýbyggingar 65.528.664 10.000.000 75.528.664
1991 Nýbyggingar 2.823.377.071 181.158.804 3.004.535.875
1992 Nýbyggingar 2.957.994.495 374.550.542 3.332.545.037
1992 Viðb./Endurb. 91.164.083 91.164.083
1993 Nýbyggingar 2.475.528.655 740.024.657 3.215.553.312
1993 Viðb./Endurb. 283.439.164 283.439.164
1994 Nýbyggingar 3.352.290.075 969.794.478 4.322.084.553
1994 Viðb./Endurb. 329.473.638 329.473.638
1995 Nýbyggingar 2.973.174.890 1.089.811.224 4.062.986.114
1995 Viðb./Endurb. 234.160.971 234.160.971
1996 Nýbyggingar 3.168.503.786 1.137.400.191 4.305.903.977
1996 Viðb./Endurb. 248.941.194 248.941.194
1997 Nýbyggingar 3.870.640.639 1.217.084.307 5.087.724.946
1997 Viðb./Endurb. 312.542.712 312.542.712
1998 Nýbyggingar 4.836.419.862 1.064.577.789 5.900.997.651
1998 Viðb./Endurb. 363.815.828 363.815.828
1999 Nýbyggingar 6.205.850.736 1.113.372.460 7.319.223.196
1999 Viðb./Endurb. 437.660.640 437.660.640
Samtals frá 1990-99 35.030.507.105 7.897.774.452 42.928.281.557
(Viðb./Endurb. = Viðbyggingar og endurbætur).
Upphæðir eru í krónum. Listinn greinir raunverulegar lánveitingar eins og þær voru á hverjum tíma og má því segja að upphæðir séu tilgreindar á því verðlagi sem þá gilti.
Heimild: Íbúðalánasjóður.
Mynd 1. Fjárhæð endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna við viðhald, endurbætur og nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.