Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 247. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 251 — 247. mál.
um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.
Með lögum nr. 34/2000, um breytingu á gjaldtökuákvæðum nokkurra laga á sviði sjávarútvegs, voru m.a. lögfestar fjárhæðir sem renna til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins. Gjöldin eru tvenns konar og eru lögð á eigendur fiskiskipa. Annars vegar er um að ræða gjald sem lagt er á um hver áramót og miðast við stærð skips í brúttótonnum. Hins vegar er um að ræða gjald sem lagt er á við úthlutun aflaheimilda. Fram að framangreindri lagabreytingu hafði fjárhæðum verið breytt árlega með reglugerð og var miðað við breytingar sem orðið höfðu á vísitölu byggingarkostnaðar á sama tíma enda voru ákvæði þar að lútandi í þágildandi lögum. Til að halda sömu reglu er hér lagt til:
1. Að gjald á hvert brúttótonn fiskiskips verði hækkað úr 1.018 kr. í 1.081 kr. og að hámarksgjald sem lagt er á brúttótonn hvers skips hækki úr 387.000 kr. í 410.000 kr. Árið 2002 námu tekjur Þróunarsjóðs af þessu gjaldi um 87 millj. kr. og var það lækkun um 5 millj. kr. frá árinu áður. Lækkunin stafaði af fækkun skipa með veiðileyfi. Verði frumvarp þetta að lögum má gera ráð fyrir að tekjur Þróunarsjóðs af gjaldinu hækki um 5 millj. kr. og verði um 92 millj. kr. árið 2003.
2. Að gjald á hvert úthlutað þorskígildistonn hækki úr 1.358 kr. í 1.441 kr. Árið 2002 má gera ráð fyrir að tekjur Þróunarsjóðs af gjaldi á aflaheimildir verði um 615 millj. kr. Verði frumvarp þetta að lögum ásamt því að úthlutun þorskígilda verði söm og á yfirstandandi fiskveiðiári má gera ráð fyrir að tekjurnar hækki um 35 millj. kr. frá árinu 2002 og verði um 650 millj. kr. árið 2003.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Verði frumvarpið óbreytt að lögum, fjöldi skipa með veiðileyfi óbreyttur og úthlutun þorskígilda sú sama og á yfirstandandi fiskveiðiári er gert ráð fyrir að ríkistekjur sem renna til Þróunarsjóðsins á árinu 2003 nemi 742 m.kr. sem er 121 m.kr. hækkun frá fjárlögum 2002 en 40 m.kr. hækkun frá innheimtu ársins 2001.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 251 — 247. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002–2003.)
1. gr.
2. gr.
3. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með lögum nr. 34/2000, um breytingu á gjaldtökuákvæðum nokkurra laga á sviði sjávarútvegs, voru m.a. lögfestar fjárhæðir sem renna til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins. Gjöldin eru tvenns konar og eru lögð á eigendur fiskiskipa. Annars vegar er um að ræða gjald sem lagt er á um hver áramót og miðast við stærð skips í brúttótonnum. Hins vegar er um að ræða gjald sem lagt er á við úthlutun aflaheimilda. Fram að framangreindri lagabreytingu hafði fjárhæðum verið breytt árlega með reglugerð og var miðað við breytingar sem orðið höfðu á vísitölu byggingarkostnaðar á sama tíma enda voru ákvæði þar að lútandi í þágildandi lögum. Til að halda sömu reglu er hér lagt til:
1. Að gjald á hvert brúttótonn fiskiskips verði hækkað úr 1.018 kr. í 1.081 kr. og að hámarksgjald sem lagt er á brúttótonn hvers skips hækki úr 387.000 kr. í 410.000 kr. Árið 2002 námu tekjur Þróunarsjóðs af þessu gjaldi um 87 millj. kr. og var það lækkun um 5 millj. kr. frá árinu áður. Lækkunin stafaði af fækkun skipa með veiðileyfi. Verði frumvarp þetta að lögum má gera ráð fyrir að tekjur Þróunarsjóðs af gjaldinu hækki um 5 millj. kr. og verði um 92 millj. kr. árið 2003.
2. Að gjald á hvert úthlutað þorskígildistonn hækki úr 1.358 kr. í 1.441 kr. Árið 2002 má gera ráð fyrir að tekjur Þróunarsjóðs af gjaldi á aflaheimildir verði um 615 millj. kr. Verði frumvarp þetta að lögum ásamt því að úthlutun þorskígilda verði söm og á yfirstandandi fiskveiðiári má gera ráð fyrir að tekjurnar hækki um 35 millj. kr. frá árinu 2002 og verði um 650 millj. kr. árið 2003.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 92/1994,
um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.