Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 583. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 937  —  583. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um áfengis- og vímuefnameðferð fyrir fanga.

Frá Katrínu Fjeldsted.



     1.      Telur ráðherra að bæta þurfi áfengis- og vímuefnameðferð þá sem afplánunarföngum stendur til boða?
     2.      Hvernig er samstarfi háttað milli heilbrigðisþjónustu og fangelsisyfirvalda hvað slíka meðferð áhrærir?
     3.      Telur ráðherra ástæðu til að endurskoða aðkomu heilbrigðisþjónustunnar að þessum málaflokki, og þá hvernig?