Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 585. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 939  —  585. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um framkvæmd laga um leikskóla.

Frá Ögmundi Jónassyni.



     1.      Hvernig hefur verið háttað eftirliti ráðuneytisins með framkvæmd laga um leikskóla, nr. 78/1994, með sérstöku tilliti til 15. gr. laganna þar sem kveðið er á um rétt fatlaðra barna til aðstoðar og þjálfunar innan leikskólans undir handleiðslu sérfræðinga?
     2.      Hefur þessu lagaákvæði verið fullnægt?