Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 615. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 982  —  615. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um ráðningu sjúkrahúsprests við Barnaspítala Hringsins.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hvert er viðhorf ráðherra til þess að ráðinn verði sérstakur sjúkrahúsprestur við nýja barnaspítalann til að bæta þjónustu við foreldra langveikra og fatlaðra barna?