Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um kjör embættismanna eftirtalinna alþjóðanefnda:
Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins: Einar K. Guðfinnsson formaður og Hjálmar Árnason varaformaður.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins: Sólveig Pétursdóttir formaður og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.
Íslandsdeild NATO-þingsins: Árni R. Árnason formaður og Magnús Stefánsson varaformaður.
Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: Pétur H. Blöndal formaður og Dagný Jónsdóttir varaformaður.
Íslandsdeild þings Vestur-Evrópusambandsins: Bjarni Benediktsson formaður og Guðjón Hjörleifsson varaformaður.
Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA: Gunnar Birgisson formaður og Birkir J. Jónsson varaformaður.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Birgir Ármannsson formaður og Hjálmar Árnason varaformaður.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs: Jónína Bjartmarz formaður og Drífa Hjartardóttir varaformaður.
Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál: Sigríður A. Þórðardóttir formaður og Magnús Stefánsson varaformaður.