Boðun til ríkisráðsfundar

Þriðjudaginn 03. febrúar 2004, kl. 13:41:48 (3755)

2004-02-03 13:41:48# 130. lþ. 55.91 fundur 285#B boðun til ríkisráðsfundar# (aths. um störf þingsins), MÁ
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur, 130. lþ.

[13:41]

Mörður Árnason:

Forseti. Ég vil fyrir hönd þingheims þakka forseta hina glöggu ræðu sem hann flutti hér áðan. Ég virði ýmis þau viðhorf sem þar komu fram og væri ánægjulegt að ríkisráðið kæmi saman í tilefni af ýmsum hátíðlegum viðburðum í sögu lands og þjóðar. Spurningu minni hefur þó enn ekki verið svarað. Hvenær var fundurinn boðaður? Hvenær var fundurinn ákveðinn? Hvenær var hann boðaður?