Íslensk farskip

Fimmtudaginn 04. mars 2004, kl. 13:51:46 (4913)

2004-03-04 13:51:46# 130. lþ. 77.4 fundur 484. mál: #A íslensk farskip# (skattareglur o.fl.) þál., Flm. SigurjÞ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 130. lþ.

[13:51]

Flm. (Sigurjón Þórðarson):

Herra forseti. Þessi þáltill. sem ég flyt ásamt hv. þm. Gunnari Örlygssyni, Grétari Mar Jónssyni og Guðjóni A. Kristjánssyni, felur í sér að fela hæstv. fjmrh. að skipa fimm manna nefnd til að kanna hvernig breyta megi skattareglum og öðrum reglum sem lúta að útgerð vöruflutningaskipa þannig að íslenskar útgerðir sjái sér hag í að sigla skipum sínum undir íslenskum fána með íslenskar áhafnir. Nefndinni verði falið að fara yfir núgildandi reglur og reglur annarra þjóða og móta tillögur til að ná framangreindu markmiði.

Nefndinni er ætlað að skila tillögum fyrir 1. október 2004.

Herra forseti. Þingsályktunartillagan miðar að því að íslensk skip sem sigla með vörur til Íslands verði að nýju mönnuð íslenskum sjómönnum. Nú er svo komið að ekkert vöruflutningaskip siglir undir íslensku flaggi. Áhafnir flutningaskipanna eru ýmist skipaðar Íslendingum að öllu leyti eða að hluta og stundum er jafnvel enginn Íslendingur um borð. Ef fram fer sem horfir mun Íslendingum í áhöfn skipanna fækka enn frekar og þeir jafnvel hverfa úr áhöfn. Sú þróun hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir sjálfstæða þjóð á eyju í miðju Atlantshafi að ráða ekki yfir þekkingu til þess að sigla með vörur til og frá landinu. Einnig skiptir miklu máli út frá mengunarsjónarmiðum, svo sem til að verja hrygningarsvæði nytjastofna og til að verja fiskeldi við strendur landsins, hagsmuni æðarbænda og náttúru Íslands, að þeir sem sigla við strendur landsins með hættulegan varning, t.d. olíu, séu staðkunnugir. Ætla má að íslenskir sjómenn séu að jafnaði staðkunnugri og þekki betur til þeirra aðstæðna en útlenskir sjómenn og þekki einnig betur þær hættur sem ber að varast við strendur Íslands, og geti þar af leiðandi verið betur í stakk búnir til að bregðast við aðsteðjandi hættum.

Herra forseti. Norrænar þjóðir hafa metið mikið þann ávinning að staðkunnugir sjómenn sigli skipum við strendur landa sinna og farið ýmsar leiðir til þess að stuðla að því að flutningaskip sigli undir sínum þjóðfána og sé ekki flaggað út, eins og kallað er. Það sem hefur hvatt fyrirtæki til þess að flagga skipum sínum út er að þau geta ráðið sjómenn frá þróunarríkjum á launum sem eru brot af launum norrænna sjómanna. Flutningsmenn þessarar tillögu telja sérstaklega áhugavert að skoða þá leið sem Svíar hafa farið, þ.e. að allir sjómenn eru ráðnir samkvæmt innlendum kjarasamningum en skattgreiðslur af launum renna beint til útgerðarfyrirtækjanna í stað þess að renna í ríkissjóð. Sænska ríkið nýtur þess að sænskir ríkisborgarar eyða tekjum sínum í landinu en erlendir sjómenn fara til heimalands síns með tekjur sínar. Útflöggun farskipa og fækkun starfa í farmannastétt hefur margoft verið færð í tal við stjórnvöld á liðnum árum. Til upprifjunar á því skal láta hér nægja að vitna í skýrslu Farmanna- og fiskimannasambands Íslands frá nóvember 1995, bls. 15, með leyfi forseta:

,,Öll Norðurlöndin að Íslandi slepptu hafa hrint í framkvæmd umfangsmiklum aðgerðum til að tryggja innlent atvinnuöryggi í kaupskipaútgerð í samkeppni við ódýrt vinnuafl frá þróunarlöndum og Austur-Evrópu. Þessum aðgerðum er einnig ætlað að gera eigin skráningarfána eftirsóknarverðan í krafti rekstrarskilyrða til jafns við þau sem ríkja á alþjóðamörkuðum.

Í ljósi þess að atvinnutækifærum íslenskra farmanna hefur fækkað um meira en helming á undangengnum fimm árum og að kaupskipaflotinn hefur ekki verið minni um áratuga skeið og þess utan eru flest skip flotans undir erlendum skráningarfánum, þá ríkja nú hérlendis hliðstæð skilyrði við þau sem urðu forsendur fyrir áðurnefndum stjórnvaldsaðgerðum á hinum Norðurlöndunum.

Markmið úttektarinnar yrði að meta ávinning og kostnað fyrir íslenskan þjóðarbúskap í víðustu merkingu þeirra orða, af aðgerðum hliðstæðum við þær sem gripið hefur verið til á öðrum Norðurlöndum. Slík úttekt er nauðsynlegur grunnur fyrir Alþingi og stjórnvöld að byggja á við ákvarðanir um hvort grípa eigi til aðgerða hérlendis eður ei.

Fyrir liggja ýmsar athuganir á stöðu íslenskrar kaupskipaútgerðar og atvinnuöryggi íslenskra farmanna, samanber eftirfarandi:

-- Mönnun, skráningar og rekstur kaupskipa. Reykjavík 1991.

-- Skráning íslenskra kaupskipa. Skýrsla nefndar vegna skráningarreglna íslenskra kaupskipa, frá samgönguráðuneytinu, sem gefin var út 1993.

Í framangreindum skýrslum er þó ekki lagt mat á þjóðhagslegan ávinning né kostnað af opinberum aðgerðum.

Fyrrgreind hagsmunasamtök telja að ekki sé tímabært að tíunda í smáatriðum alla þá þætti sem úttektin skuli ná til, fyrr en fyrir liggi vilji stjórnvalda til að framkvæma úttektina. Sömu aðilar eru að sjálfsögðu reiðubúnir til að veita allar umbeðnar upplýsingar en árétta samtímis að þeir óska ekki eftir beinni aðild að úttektinni, þannig að niðurstöður hennar verði sannanlega óhlutdrægar.``

Eins og áður segir gæti samþykkt tillögunnar orðið til þess að íslenskum farmönnum gæti fjölgað á ný og það gæti hleypt nýju blóði í Sjómannaskólann. Fækkun undirmanna um borð í íslenskum farskipum mun þegar fram í sækir leiða til þess að æ færri leggja stund á nám í Stýrimannaskólanum. Nemar skólans þurfa að hafa verið til sjós um ákveðinn tíma áður en hægt er að sækja um inngöngu í skólann. Það gefur því auga leið að fækkun undirmanna á farskipum muni leiða til fækkunar yfirmanna þegar fram í sækir og það er mjög alvarleg þróun. Með samþykkt tillögunnar gæti það leitt til skattalækkunar fyrir atvinnulífið eða fyrir kaupskipaútgerðir sem gæti þegar fram í sækti í raun aukið tekjur ríkissjóðs.

Herra forseti. Ég óska eftir að þáltill. verði vísað til efh.- og viðskn. að lokinni 1. umr.