Veiðieftirlitsgjald

Þriðjudaginn 30. mars 2004, kl. 18:27:09 (5827)

2004-03-30 18:27:09# 130. lþ. 90.6 fundur 787. mál: #A veiðieftirlitsgjald# (afnám gjalds) frv., sjútvrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 130. lþ.

[18:27]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 33 5. maí 2000, um veiðieftirlitsgjald, með síðari breytingum.

Breytingar þær sem hér eru lagðar til eiga rætur að rekja til þess að á árinu 2002 samþykkti Alþingi breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, sem felur í sér að frá og með 1. september 2004 verður lagt sérstakt veiðigjald á eigendur skipa fyrir úthlutaðar veiðiheimildir eða landaðan afla ef ekki er um úthlutun að ræða. Jafnframt var þess getið í greinargerð með frumvarpinu að ef til greiðslu veiðigjalds kæmi væri við það miðað að niður féllu gjöld sem útgerðin greiddi og áætluð voru samkvæmt fjárlögum ársins 2002 að fjárhæð um 850 millj. kr., þ.e. veiðieftirlitsgjald 226,5 millj. kr. og þróunarsjóðsgjald 621 millj. kr. Með frumvarpi þessu er lagt til að veiðieftirlitsgjaldið falli niður frá 1. september nk. Þar sem 2. gr. laganna fellur þar með niður þykir nauðsynlegt að árétta að gjöld sem innheimt eru samkvæmt lögunum renni til reksturs Fiskistofu.

Í 2. gr. er lagt til að innheimt verði sama gjald fyrir flutning á sóknardögum milli skipa og innheimt er fyrir flutning á aflahlutdeild og krókaaflahlutdeild enda sama vinna í því fólgin. Ekki hefur verið innheimt gjald fyrir flutning á sóknardögum milli skipa en nauðsynlegt er að það verði gert til að gæta samræmis milli aðila sem stunda fiskveiðar. Er því lagt til að umræddar breytingar verði gerðar á lögunum.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni 1. umr. verði frv. vísað til hv. sjútvn.