Lokafjárlög 2002

Fimmtudaginn 15. apríl 2004, kl. 18:07:52 (6451)

2004-04-15 18:07:52# 130. lþ. 97.7 fundur 848. mál: #A lokafjárlög 2002# frv., fjmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 130. lþ.

[18:07]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til lokafjárlaga fyrir árið 2002 sem dreift hefur verið á þskj. 1305. Frumvarpið er lagt fram í samræmi við lög nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins, til staðfestingar á ríkisreikningi fyrir árið 2002.

Framsetning á talnaefni frv. er í samræmi við fjárlög og fjáraukalög ársins 2002 og niðurstöður ríkisreiknings fyrir sama ár og er með sama sniði og fyrri lokafjárlagafrumvörp. Stuðst er við sömu vinnureglur við uppgjör og ráðstöfun á stöðu fjárheimilda í árslok og í frv. til lokafjárlaga fyrir árið 2001.

Efnisatriði frv. eru í stórum dráttum á þá leið að í 1. gr. er leitað heimilda til að breyta fjárveitingum í sama mæli og reikningsfærðar ríkistekjur hafa vikið frá áætlunum fjárlaga samkvæmt uppgjöri. Þar er um það að ræða að stofnanir eða verkefni sem fjármögnuð eru með hlutdeild í ríkistekjum fái meiri eða minni heimildir til ráðstöfunar á tekjunum eftir því hvort þær hafa reynst meiri eða minni en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.

Í 2. gr. frv. eru lagðar til niðurfellingar á stöðu fjárheimilda í árslok, einkum vegna verkefna þar sem útgjöld ráðast af öðrum lögum en fjárlögum, svo sem almannatryggingum, vaxtagjöldum og lífeyrisskuldbindingum. Þar er þá um að ræða afgangsheimildir eða umframgjöld sem ekki flytjast milli ára og koma þar með ekki til breytinga á fjárheimildum ársins á eftir.

Samkvæmt 45. gr. fjárreiðulaga skal í lokafjárlögum leita heimilda til uppgjörs á gjöldum umfram fjárheimildir og ónotuðum fjárveitingum sem ekki eru fluttar milli ára. Jafnframt skal í frv. leggja fram sérstaka skrá yfir geymdar afgangsfjárheimildir og um þá aðila sem hafa farið fram úr fjárheimildum ársins. Einnig skal í frv. gera grein fyrir ónýttum lántökuheimildum liðins árs.

Í 37. gr. laganna er heimild til að geyma ónýttar fjárveitingar í lok reikningsárs og með sama hætti að draga umframgjöld fyrra árs frá fjárveitingu ársins.

Eins og ég gat um er í 1. gr. frv. lagðar til breytingar á fjárheimildum ráðuneyta vegna frávika í mörkuðum tekjum og öðrum rekstrartekjum miðað við fjárlög, en nánari skipting á stofnanir og verkefni er í sundurliðun 1. Er um að ræða breytingar í samræmi við reikningsniðurstöður ársins 2002 þar sem útgjaldaheimild er hækkuð í þeim tilvikum að lögboðnar ríkistekjur hafi reynst vanáætlaðar í fjárlögum, en lækkuð hafi tekjurnar verið ofáætlaðar.

Sem dæmi má taka að í frv. er gert ráð fyrir að fjárheimildir Jarðasjóðs og jarðeigna ríkisins hækki um 125,2 millj. kr. þar sem tekjur af sölu á jarðeignum Jarðasjóðs og afgjöldum ríkisjarða urðu hærri en áætlað var. Mesta frávik til hækkunar á fjárheimild stofnunar samkvæmt frv. er 283,6 millj. kr. hjá Atvinnuleysistryggingasjóði þar sem fjárþörf sjóðsins reyndist vanáætluð í fjárlögum og mesta frávik til lækkunar á fjárheimild er 35,5 millj. kr. hjá Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli vegna lægri tekna af lendingar- og vopnaleitargjöldum en áætlað var.

Í 2. gr. er eins og áður sagði sótt um heimildir til uppgjörs á ónotuðum fjárveitingum og umframgjöldum ráðuneyta sem falla niður og flytjast því ekki til næsta árs og vísa ég til nánari skiptingar í sundurliðun 2. Þar er um hefðbundna afgreiðslu að ræða sem lítið breytist á milli ára. Meginviðmiðunin er sú að felld er niður staða fjárheimilda á þeim liðum þar sem útgjöld ráðast fremur af lögum en af fjármálastjórn tiltekins stjórnsýsluaðila, svo sem lögboðnar greiðslur velferðarkerfisins eða þá að útgjöld liðarins ráðast af hagrænum og kerfislægum þáttum eins og t.d. lífeyrisskuldbindingum. Einnig falla niður fjárheimildastöður verkefna sem lokið er, eins og t.d. 52,4 millj. kr. afgangur vegna framkvæmda við þjónustuskála Alþingis á lið 00-205 Framkvæmdir á Alþingisreit.

Í fskj. 1 með frv. er í samræmi við 45. gr. laga um fjárreiður ríkisins birt yfirlit yfir geymdar fjárheimildir og þá aðila sem hafa farið fram úr fjárheimildum ársins, þ.e. yfirlit yfir stöðu fjárlagaliða sem færast til næsta árs.

Í fskj. 2 með frv. er yfirlit yfir fjárheimildir ársins 2002 fyrir ríkissjóð í heild og einstök viðfangsefni, reikningsfærð gjöld og fjárheimildastöður í árslok. Slíkt fylgiskjal hefur ekki áður fylgt frv. til lokafjárlaga, en fjárln. hefur óskað eftir slíkri samantekt í umfjöllun sinni um fyrri lokafjárlagafrumvörp og því var ákveðið að láta hana nú fylgja frv. og er stefnt að því að svo verði framvegis.

Herra forseti. Með frv. eru lagðar fyrir Alþingi niðurstöður ríkissjóðs árið 2002 og vísa ég í því sambandi til greinargerðar í fjáraukalögum og í ríkisreikningi fyrir það ár um meginatriðin í framvindu ríkisfjármálanna og um helstu frávik á tekjum og gjöldum.

Þá hefur Ríkisendurskoðun einnig lagt fyrir Alþingi skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings 2002 og um hana hefur verið fjallað í fjárln.

Ég hef, herra forseti, farið hér nokkrum almennum orðum um frv. og hlutverk þess í tengslum við lög um fjárreiður ríkisins. Ég tel ekki ástæðu til að tíunda einstaka liði í frv. sem varða uppgjör samkvæmt fyrirliggjandi reikningi, en legg til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjárln. þingsins.