Verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu

Miðvikudaginn 26. maí 2004, kl. 21:25:20 (9047)

2004-05-26 21:25:20# 130. lþ. 127.34 fundur 564. mál: #A verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu# (heildarlög) frv. 97/2004, Frsm. SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur, 130. lþ.

[21:25]

Frsm. umhvn. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti og brtt. frá umhvn. um frv. til laga um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund fjölmarga gesti. Einnig bárust umsagnir sem komu að miklu gagni við umfjöllunina.

Frumvarpið byggist í meginatriðum á frumvarpsdrögum sem ráðherraskipuð nefnd samdi og skilaði ráðherra snemma árs 2002. Frumvarpið felur í sér að verndun Mývatns og Laxár verði áfram bundin í sérlög en þó með þeim hætti að ákvæði þeirra nái einkum til verndunar vatnsins og árinnar. Frá því að gildandi lög voru sett hefur lagaumhverfi á sviði náttúruverndar og umhverfismála breyst mikið, m.a. með setningu skipulags- og byggingarlaga, laga um mat á umhverfisáhrifum og náttúruverndarlaga. Meginreglan er sú að um verndun og friðlýsingu svæða fari samkvæmt náttúruverndarlögum, nr. 44/1999, þar sem er að finna ítarleg ákvæði um friðlýsingu náttúruminja. Í frumvarpinu eru m.a. ákvæði um verndun vatnasviðs Mývatns og Laxár, umsjón verndarsvæðisins og gerð verndaráætlunar auk ákvæða um Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn.

Frá því að frumvarpið var lagt fram á Alþingi hafa verið miklar deilur um ákvæði til bráðabirgða III. 2. apríl sl. barst formanni nefndarinnar hins vegar bréf undirritað af forstjóra Landsvirkjunar og formanni stjórnar Landeigendafélags Laxár og Mývatns. Í bréfinu kom fram sameiginleg ósk þeirra um að ákvæði til bráðabirgða III yrði fellt brott úr frumvarpinu. Telur nefndin rétt að verða við þessari ósk og leggur til að ákvæði til bráðabirgða III verði fellt brott. Nefndin bindur vonir við að farsæl niðurstaða verði á þessu máli.

Í frumvarpinu er lagt til að gerð verði verndaráætlun sem nái til Skútustaðahrepps, auk Laxár með eyjum, hólmum og kvíslum, að ósi árinnar við Skjálfandaflóa ásamt 200 m breiðum bakka meðfram Laxá báðum megin. Þetta er sama svæði og fellur undir gildissvið gildandi laga og er verndaráætluninni ætlað að vera stefnumótandi fyrir náttúru- og umhverfisvernd á svæðinu. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I skal gerð hennar lokið fyrir 1. janúar 2006. Við umfjöllun málsins kom fram að vinna við verndaráætlunina er hafin.

Þá er lagt til með ákvæði til bráðabirgða II að Umhverfisstofnun skuli þegar hefjast handa við undirbúning að friðlýsingu landsvæða sem ekki falli undir 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins en mikilvægt sé að vernda vegna mikilvægis þeirra. Jafnframt er lagt til í 2. mgr. ákvæðisins að umhverfisráðherra skuli við gildistöku laganna tilkynna landeigendum og öðrum tilgreindum aðilum hvaða landsvæði áformað er að friðlýsa. Nefndinni var greint frá því að listi yfir þessi svæði getur legið fyrir innan tveggja til þriggja mánaða. Við umfjöllun málsins var lýst áhyggjum af því að lagt er til að dregið verði úr vernd ákveðinna svæða og því millibilsástandi sem skapast frá því að frumvarpið verður að lögum þar til friðlýsingu samkvæmt ákvæðinu er lokið en gert er ráð fyrir að þau svæði sem friða á fari í friðlýsingarferli samkvæmt náttúruverndarlögum. Fram kom hjá fulltrúum sveitarstjórna á svæðinu að gert væri ráð fyrir að þau svæði sem ætti að friða færu í friðlýsingarferli lögum samkvæmt. Einnig kom fram að ef fara ætti í framkvæmdir á svæðinu sem ekki liggja fyrir upplýsingar um í skipulagi færi um það samkvæmt skipulags- og byggingarlögum og eftir atvikum lögum um mat á umhverfisáhrifum. Nefndin leggur áherslu á að ekki verði farið í framkvæmdir á þeim svæðum sem listi skv. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II nær til nema í fullu samráði við umhverfisráðuneytið. Þá leggur nefndin til að gildistöku frumvarpsins verði frestað til 1. september nk. svo að nægilegt svigrúm gefist til að vinna lista samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II. Að síðustu leggur nefndin áherslu á að við birtingu laganna verði kort í fylgiskjölum I og II prentuð í lit og með fleiri örnefnum.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef þegar gert grein fyrir. Umhvn. er einróma í áliti sínu en Kolbrún Halldórsdóttir skrifar undir álitið með fyrirvara.