Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hafa svohljóðandi bréf:
,,Þar sem Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, 4. þm. Reykv. n., er staddur erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstfl. í Reykv. n., Ásta Möller, taki sæti hans á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,
Einar K. Guðfinnsson,
formaður þingflokks Sjálfstfl.``
Þá hefur svohljóðandi bréf borist:
,,Þar sem Katrín Júlíusdóttir, 9. þm. Suðvest., getur ekki sótt þingfundi vegna veikinda óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Samf. í Suðvest., Ásgeir Friðgeirsson, taki sæti hennar á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,
Margrét Frímannsdóttir,
formaður þingflokks Samf.``
Ásta Möller og Ásgeir Friðgeirsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa á ný.