Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri

Mánudaginn 03. nóvember 2003, kl. 15:11:49 (1011)

2003-11-03 15:11:49# 130. lþ. 19.1 fundur 114#B Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri# (óundirbúin fsp.), ÞES
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 130. lþ.

[15:11]

Þórarinn E. Sveinsson:

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. heilbrrh. fyrir þessar skýringar. Það er mjög mikilvægt að leiðrétta neikvæðan fréttaflutning, sérstaklega þegar viðkvæmur og mikilvægur vinnustaður eins og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri á í hlut. Þar hefur verið mikil og góð uppbygging í gangi og fréttaflutningur eins og birtist í fjölmiðlum fyrir nokkru síðan var heldur til að óróa umhverfið og það er af hinu verra.

Ég þakka góðar skýringar.