Afgreiðsla fjárlaga

Fimmtudaginn 04. desember 2003, kl. 13:56:06 (2625)

2003-12-04 13:56:06# 130. lþ. 42.97 fundur 213#B afgreiðsla fjárlaga# (um fundarstjórn), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 130. lþ.

[13:56]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti hefur verið til hlés í þessari umræðu um fundarstjórn forseta og vill láta það koma fram á þessu stigi máls að umræða um 8. dagskrárlið mun hefjast eins og dagskrá gerir ráð fyrir og tilkynnt hafði verið um, en mun þá jafnframt beita sér fyrir því að þegar líður á daginn verði efnt til fundar með formönnum þingflokka og forustu þingsins til að ræða þær athugasemdir og þau álitamál sem hér eru uppi.