Fjárlög 2004

Fimmtudaginn 04. desember 2003, kl. 21:06:28 (2718)

2003-12-04 21:06:28# 130. lþ. 42.8 fundur 1. mál: #A fjárlög 2004# frv., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 130. lþ.

[21:06]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessi svör. Þau fullvissa mig um að þegar hv. þm. áttaði sig á því að raunverulegur samningur var ekki til um þetta mál væri hann tilbúinn til að vinna að því að skoða það og sjá hvaða lausn megi finna út úr því máli. Ég þakka fyrir þau svör.