Eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara

Laugardaginn 13. desember 2003, kl. 14:12:32 (3412)

2003-12-13 14:12:32# 130. lþ. 50.2 fundur 447. mál: #A eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara# frv. 141/2003, GÖrl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 130. lþ.

[14:12]

Gunnar Örlygsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Í þessu fræga frv. eru sérákvæði bæði um forseta Íslands og forsrh., eins og ég get skilið það. Ég er ekki að biðja hv. þm. Bjarna Benediktsson um að fara í mikla vinnu þegar ég nefni til sögunnar þá beiðni mína að þessi tiltekni liður um forsrh. verði reiknaður sérstaklega. Ég ítreka enn og aftur beiðni mína þess efnis.