Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 97. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 97  —  97. mál.




Skýrsla



heilbrigðisráðherra um störf nefndar um stöðu óhefðbundinna lækninga.

(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)



    Í kjölfar þingsályktunar um stöðu óhefðbundinna lækninga sem samþykkt var á Alþingi 3. maí 2002 (33. mál 127. löggjafarþings) skipaði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, með bréfi dags. 12. 12. 2002, nefnd sem falið var að gera úttekt á stöðu óhefðbundinna lækninga á Íslandi og bera hana saman við stöðu mála annars staðar á Norðurlöndunum, í Evrópusambandinu og í Bandaríkjunum.
    Í nefndina voru skipuð: Guðmundur Sigurðsson læknir, formaður nefndarinnar, Ástríður Svava Magnúsdóttir nuddari, Dagný E. Einarsdóttir hómópati, Einar Magnússon, yfirlyfjafræðingur í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Haraldur Ólafsson prófessor, Nanna Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur, Sólveig Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, og Margrét Erlendsdóttir, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, sem starfsmaður nefndarinnar.
    Fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn 27. janúar 2003 og hafa alls verið haldnir 11 fundir.
    Hér birtist áfangaskýrsla nefndar um stöðu óhefðbundinna lækninga en nefndin gerir ráð fyrir að ljúka störfum og skila lokaskýrslu á fyrsta ársfjórðungi 2004.


Áfangaskýrsla nefndar um stöðu óhefðbundinna lækninga.

    Samkvæmt þingsályktun um skipun nefndar um stöðu óhefðbundinna lækninga er nefndinni ætlað að svara eftirtöldum spurningum:
     1.      Hvað eru óhefðbundnar lækningar?
     2.      Hvaða menntun er í boði á þessu sviði?
     3.      Hver er menntun leiðbeinenda sem starfa á sviði óhefðbundinna lækninga?
     4.      Hvaða reglur gilda um viðurkenningu náms og starfsréttindi á þessu sviði?
     5.      Að hvaða marki á sér stað samvinna og samstarf milli þeirra sem stunda óhefðbundnar lækningar og hefðbundinna heilbrigðisstétta?
     6.      Nýta læknar og aðrar heilbrigðisstéttir sér aðferðir óhefðbundinna lækninga í störfum sínum og að hvaða marki?
     7.      Hver er staða óhefðbundinna lækninga með tilliti til skatta, einkum virðisaukaskatts?
     8.      Hver eru áhrif og virkni óhefðbundinna lækningaaðferða?
     9.      Hvaða áhætta fylgir notkun óhefðbundinna lækningaaðferða?
     10.      Hvert er viðhorf almennings til óhefðbundinna lækninga?
     11.      Hve algengt er að fólk leiti til aðila sem bjóða óhefðbundnar lækningar?
     12.      Hvernig á að koma til móts við vaxandi umsvif á sviði óhefðbundinna lækninga?
     13.      Á að viðurkenna nám í óhefðbundnum lækningum með veitingu starfsréttinda?
    Á fyrstu fundum nefndar um stöðu óhefðbundinna lækninga var lögð áhersla á að afmarka viðfangsefnið, leita upplýsinga hérlendis um umhverfi og aðstæður þeirra sem stunda óhefðbundnar lækningar og skoða stöðu þeirra í ljósi laga og reglugerða.
    Eftirtaldir hafa komið á fundi nefndarinnar til að upplýsa hana um einstaka þætti: Sigurjón Högnason, yfirmaður virðisaukaskattsmála hjá ríkisskattstjóra, Hlöðver Bjargmundsson, frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, Eggert Eggertsson, fulltrúi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins í starfsgreinaráði um heilbrigðis- og félagsgreinar, Guðmundur Pétursson lögfræðingur og Þorbjörg Kjartansdóttir lyfjafræðingur, bæði frá Lyfjastofnun.
    Nefndin hefur einnig aflað gagna um stöðu óhefðbundinna lækninga erlendis. Einkum hefur verið horft til annarra Norðurlandaþjóða en Norðmenn og Danir eru komnir hvað lengst á veg í því skyni að fella starfsemi þeirra sem stunda óhefðbundnar lækningar að einhvers konar formlegu skipulagi.

1.    Hvað eru óhefðbundnar lækningar?

    Hugtakið óhefðbundnar lækningar er umdeilt bæði hvað varðar vísun til þess að um óhefðbundnar aðferðir sé að ræða og eins vísunin til lækninga. Mörg rök eru talin gegn notkun heitisins. Vegur þar þungt að margar þeirra aðferða sem teljast til óhefðbundinna lækninga byggjast á aldagömlum hefðum og einnig að rétturinn til að stunda lækningar og kalla sig lækni er lögvarinn.
    Það er skoðun nefndarinnar að óheppilegt sé að nota orðið lækningar um viðfangsefnið. Töluverðum tíma hefur verið varið í umræður um annað heiti. Þeirri umræðu er ekki lokið en hér á eftir verður talað um óhefðbundna meðferð.
    Ekki er til formleg skilgreining á óhefðbundinni meðferð og skilningur manna á hugtakinu er nokkuð á reiki. Mörgum er þó tamt að tala um óhefðbundna meðferð þegar átt er við ýmsar leiðir til að efla og bæta líkamlega og andlega heilsu sem falla utan viðurkenndrar heilbrigðisþjónustu. Sú skilgreining sem hér verður notast við byggist á þessari hugsun og felur í sér nokkurs konar útilokunarskilgreiningu sem tekur til margra þeirra sem njóta ekki löggildingar sem heilbrigðisstétt en veita þjónustu af einhverju tagi með það að markmiði að efla og bæta líkamlega og andlega heilsu fólks.
    Sé gengið út frá skilgreiningunni hér á undan rúmast innan hennar mikill fjöldi greina sem eiga sumar hverjar lítið eða ekkert sameiginlegt. The National Institute of Health í Bandaríkjunum hefur samið flokkunarkerfi sem tekur mið af eðli meðferðarformanna, hvaða aðferðum er beitt og hvernig og hugmyndafræðinni að baki. Einstakar greinar innan hvers flokks eru margar. Flokkarnir eru þessir: 1
     I.      Heildræn kerfi lækninga (alternative medical systems).
     II.      Meðferðarform sem byggjast á tengslum hugar og líkama (mind-body interventions).
     III.      Lífræn meðferðarúrræði (biological-based therapies).
     IV.      Aðferðir þar sem líkaminn er handleikinn eða meðhöndlaður (manipulative and body- based methods).
     V.      Orkumeðferð (energy-therapies).
    Til að varpa enn frekara ljósi á hve framboð óhefðbundinna meðferðargreina er fjölbreytt má geta þess að í skýrslu norska heilbrigðisráðuneytisins Om lov om alternativ behandling av sykdom mv. 2 eru taldar yfir áttatíu greinar óhefðbundinnar meðferðar sem þekktar eru í Noregi. Tekið er fram að listinn sé ekki tæmandi.

2.    Hvaða menntun er í boði á þessu sviði?
    Nefndin hefur lagt umtalsverða vinnu í að skoða námsleiðir að baki ólíkum greinum óhefðbundinnar meðferðar. Ekki liggur fyrir hvernig unnið verður úr þeim upplýsingum. Eins og vænta má endurspeglar námsframboðið fjölbreytileika óhefðbundinna meðferðarforma og spönnin er víð. Í sumum greinum hafa veitendur aflað sér kunnáttu á stuttum kvöld- og helgarnámskeiðum eða notið handleiðslu í tiltekinn tíma (t.d. reiki og heilun). Í öðrum greinum eiga veitendur að baki 3–5 ára nám á háskólastigi (t.d. nálastungur og smáskammtameðferð) og þarna á milli er fjölbreytt framboð náms sem tekur frá nokkrum mánuðum upp í nokkur ár.

3.    Hver er menntun leiðbeinenda sem starfa á sviði óhefðbundinnar meðferðar?
    Menntun leiðbeinenda er afar fjölbreytt eins og dæma má af umfjöllun um spurninguna hér á undan.

4.    Hvaða reglur gilda um viðurkenningu náms og starfsréttindi á þessu sviði?
    Löggilding starfsstéttar er staðfesting frá opinberum yfirvöldum um að viðkomandi uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til þess að geta borið starfsheiti og unnið við ákveðna starfsgrein.
    Á Íslandi gilda um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta lög nr. 24/1985, auk sérlaga um einstakar stéttir þar sem kveðið er á um löggildingu þeirra. Enginn hefur rétt til að starfa sem starfsmaður heilbrigðisstétta nema hafa lokið prófi í einhverri grein heilbrigðisfræði og fengið löggildingu heilbrigðisráðherra að loknu námi. Alls nýtur 31 faggrein löggildingar, 15 þeirra samkvæmt sérlögum en 16 greinar samkvæmt lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, og reglugerðum byggðum á þeim.
    Í reglugerðum um þær stéttir sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ákveður að fella undir lög um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta hverju sinni skal kveðið á um nám og menntunarskilyrði að fengnum tillögum viðkomandi starfsstétta og umsögn landlæknis. Samkvæmt gildandi lögum er óhjákvæmilegt að nám í einstökum greinum á sviði óhefðbundinnar meðferðar hljóti viðurkenningu stjórnvalda til að löggilding starfsheitis og starfsréttinda komi til greina. Bent skal á að sérstakt námsheiti eða viðurkenning náms felur ekki í sér löggildingu starfsréttinda í viðkomandi grein.
    Samkvæmt 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands er öllum frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum enda krefjist almannaheill þess. Þeim sem stunda óhefðbundna meðferð er því frjálst að starfa hér á landi svo fremi þeir fari ekki inn á starfssvið löggiltra stétta.
    Löggilding felur í sér ákveðna vernd fyrir viðkomandi starfsstéttir en leggur þeim jafnframt ákveðnar skyldur á herðar. Gerðar eru skýrar kröfur um nám og menntunarskilyrði og skilgreindar ýmsar reglur um starfshætti og skyldur. Brot á lögboðnum skyldum geta varðað leyfissviptingu eða haft í för með sér önnur viðurlög eftir atvikum.
    Löggilding heilbrigðisstétta veitir ákveðna vernd þeim sem þurfa á þjónustu þeirra að halda eins og skýrt er kveðið á um í lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, sem fjalla um samband sjúklinga, heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna. Lög um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000, eru einnig veigamikill þáttur í þessari vernd en þau fjalla um rétt sjúklinga til bóta verði þeir fyrir tjóni í tengslum við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð innan heilbrigðiskerfisins eða hjá sjálfstætt starfandi löggiltum heilbrigðisstarfsmanni. Á grundvelli þessara laga var sett reglugerð nr. 763/2000 sem skyldar löggiltar heilbrigðisstéttir til að hafa í gildi vátryggingu til að mæta tjóni sem þær kunna að valda sjúklingum. Í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 97/1990, er kveðið á um eftirlit með starfi og starfsaðstöðu heilbrigðisstétta og er það í höndum landlæknis.
    Ætla má að löggilt starfsheiti auðveldi viðkomandi starfsgrein að skapa traust og tiltrú almennings. Löggilding felur í sér opinbera viðurkenningu viðkomandi greinar, jafnframt því að staðfestar eru tilteknar kröfur sem til hennar eru gerðar. Krafa um starfsleyfi til handa einstaklingum staðfestir einnig þær kröfur sem gerðar eru og sýnir að þeim er fylgt eftir af opinberum aðilum. Löggilding felur einnig í sér ákveðin starfshlunnindi, sbr. undanþágu frá virðisaukaskatti. Í henni felst einnig atvinnuvernd sem tryggir að einungis þeir sem hafa löggildingu og starfsleyfi í viðkomandi fagi geta starfað sem slíkir. Heilbrigðisþjónusta er almennt niðurgreidd af hinu opinbera og ýmsar sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir veita þjónustu sem ríkið greiðir að hluta samkvæmt ákveðnum reglum.
    Þær skyldur sem fylgja því að hafa löggildingu er að finna m.a. í lögum og reglugerðum um einstakar starfsgreinar. Það sem yfirleitt er þeim sameiginlegt eru ákvæði um:
     *      skilyrði löggildingar
     *      að viðhalda menntun sinni
     *      þagnarskyldu
     *      framkvæmd leyfissviptingar
     *      refsiákvæði
    Læknalög eru nokkru ítarlegri en lög um aðrar heilbrigðisstéttir og almennt vísa önnur lög til þeirra um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsfólks. Helstu ákvæði læknalaga sem telja verður sameiginleg löggiltum heilbrigðisstéttum eru:
     *      ákvæði um árvekni og trúmennsku í starfi og að viðhalda þekkingu sinni
     *      ábyrgð á meðferð sjúklinga
     *      upplýsingaskylda gagnvart sjúklingum
     *      útgáfa vottorða
     *      skylda til að sinna útkalli
     *      þagnarskylda
     *      heimild til að auglýsa starfsemi sína
     *      eftirlit landlæknis
     *      tilkynningarskylda heilbrigðisstarfsfólks um mistök starfsmanna í starfi
    Menntun heilbrigðisstarfsfólks og löggilding einstakra starfsstétta á grundvelli menntunar sem samþykkt er af heilbrigðisyfirvöldum felur í sér ákveðið gæðaeftirlit hins opinbera með starfsfólki í heilbrigðisþjónustu. Rök fyrir slíku eftirliti eru m.a. hagsmunir sjúklinga sem geta með þessu gengið að því vísu að starfsmenn hafi gengist undir ákveðið hæfileikamat. Fyrir vinnuveitandann er löggilding ávísun á faglega þekkingu og færni starfsmanns. Starfsmaðurinn sjálfur lítur gjarna á löggildinguna sem viðurkenningu á faglegum og siðrænum mælikvarða. Auk þessa veitir löggilding starfsmanni öruggari og skýrari stöðu og tilfinning hans fyrir ábyrgð á faglegu starfi eykst.

Staða óhefðbundinna meðferðaraðila.
    Þeir sem veita óhefðbundna meðferð njóta ekki löggildingar og teljast því ekki til heilbrigðisstétta. Segja má að óformleg skilgreining á þeim sem veita óhefðbundna meðferð sé nokkurs konar útilokunarskilgreining, því undir hana falla margir sem njóta ekki löggildingar sem heilbrigðisstétt en veita þjónustu af einhverju tagi sem hefur það að markmiði að efla og bæta líkamlega og andlega heilsu fólks.
    Engin lögformleg skilgreining er til á óhefðbundinni meðferð eða þeim sem veita slíka meðferð. Þær skilgreiningar sem stuðst er við lúta sem áður segir fyrst og fremst að þeim þáttum sem greina þessa meðferðaraðila frá löggiltum heilbrigðisstéttum. Lögformleg staða þeirra greina sem veita óhefðbundna meðferð verður líklega best skýrð sem frávik frá stöðu löggiltra heilbrigðisstétta. Þær njóta ekki opinberrar viðurkenningar. Hið opinbera gerir engar kröfur til náms í þessum greinum né setur skilgreiningar eða gerir tilteknar kröfur um hvernig starfsemi óhefðbundinna greina skuli fara fram umfram það sem almennt gildir um atvinnustarfsemi. Engin opinber skrá er til yfir þá sem veita óhefðbundna meðferð og ekkert skipulagt eftirlit er með þessum aðilum. Þeir sem nýta sér óhefðbundna meðferð njóta ekki sömu verndar og fylgir samskiptum við löggiltar heilbrigðisstéttir. Afgerandi þættir sem greina þá sem stunda óhefðbundna meðferð frá löggiltum heilbrigðisstéttum eru þeir helstir að ekki eru bundin í lög eða reglugerðir kröfur eða skilyrði um:
     *      að viðhalda menntun sinni
     *      þagnarskyldu
     *      árvekni og trúmennsku í starfi og að viðhalda þekkingu sinni
     *      ábyrgð á meðferð sjúklinga
     *      upplýsingaskyldu gagnvart sjúklingum
     *      þagnarskyldu
     *      heimild til að auglýsa starfsemi sína *
     *      eftirlit landlæknis *
     *      refsiákvæði *
    Þess ber að geta að þónokkur fagfélög þeirra sem veita óhefðbundna meðferð hafa sett sér siðareglur og gera ákveðnar kröfur til félagsmanna sinna um að virða þagnarskyldu, viðhalda menntun sinni, trúmennsku og árvekni í starfi, ábyrgð á meðferð skjólstæðinga og upplýsingaskyldu gagnvart skjólstæðingum.

Óbeinar hömlur á starfsemi óhefðbundinna meðferðaraðila.
    Eins og áður segir er í 75. gr. stjórnarskrárinnar kveðið á um frelsi allra til að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum enda krefjist almannaheill þess. Löggilding heilbrigðisstétta felur í sér slíkar skorður og því má segja að löggilding þeirra feli í sér óbeinar hömlur á starfsemi óhefðbundinna meðferðaraðila.
    Samkvæmt læknalögum, nr. 53/1988, er ekki einungis starfsheitið læknir lögvarið, heldur einnig rétturinn til að stunda lækningar. Skv. 6. gr. laganna er öðrum en löggiltum læknum óheimilt að nota starfsheiti eða kynningarheiti sem til þess eru fallin að gefa hugmyndir um að þeir séu læknar eða stundi lækningar. Nánar er kveðið á um þetta í V. kafla læknalaga sem fjallar um skottulækningar en skv. 22. gr. eru hvers konar skottulækningar bannaðar hér á landi. Það teljast skottulækningar „er sá sem ekki hefur leyfi samkvæmt lögum þessum býðst til þess að taka sjúklinga til lækninga, gerir sér lækningar að atvinnu, auglýsir sig eða kallar sig lækni, ráðleggur mönnum og afhendir þeim lyf sem lyfsalar mega einir selja.“ Í 23. gr. laganna er jafnframt kveðið á um bann við auglýsingum um lækningarmátt drykkja, matvæla, neyslu- og nauðsynjavara og annars.

5.    Að hvaða marki á sér stað samvinna og samstarf milli þeirra sem stunda óhefðbundna meðferð og hefðbundinna heilbrigðisstétta?
    Nefndin hefur ekki aflað mikilla upplýsinga um þetta efni enn sem komið er. Liður í upplýsingaöflun er fyrirspurn sem hún hefur beint til Háskóla Íslands um stöðu málaflokksins í kennslu/námi heilbrigðisstétta við Háskóla Íslands.
    Erlendis hefur umfjöllun um samþættingu óhefðbundinna og hefðbundinna meðferða farið vaxandi og sums staðar hefur þessari samþættingu verið hrint í framkvæmd af heilbrigðismenntuðu starfsfólki. Þessi samþætting byggist á aðferðum sem hafa verið rannsakaðar með tilliti til árangurs og öryggis, aðferðum sem eru taldar bæta líðan og lífsgæði sjúklinga og auðvelda þeim að ganga í gegnum hefðbundna meðferð. Dæmi um slíka samþættingu er deild við Memorial Sloan-Kettering Cancer Centre sem var stofnuð árið 1999, Integrative Medicine Service.

6.    Nýta læknar og aðrar heilbrigðisstéttir sér aðferðir óhefðbundinnar meðferðar í störfum sínum og að hvaða marki?
    Það er þekkt að heilbrigðisstéttir nýta sér ákveðnar aðferðir óhefðbundinnar meðferðar í störfum sínum. Sem dæmi um það má nefna notkun nálastungna við verkjameðferð en þá er aðeins um að ræða afmarkaðan þátt en ekki að viðkomandi byggi á heildrænu kerfi nálastunguaðferða. Ekki er unnt að leggja mat á umfang þessa nema gera á því sérstaka rannsókn.
    Lítið hefur verið fjallað um viðhorf íslenskra heilbrigðisstétta til óhefðbundinnar meðferðar og ekki er ljóst hvaða stefna hefur verið tekin meðal fagfélaga, heilbrigðisstofnana né menntastofnana til þessa máls.
    Erlendar rannsóknir gefa til kynna mismunandi viðhorf heilbrigðisstétta. Þannig virðast til dæmis hjúkrunarfræðingar jákvæðari en læknar, ungir jákvæðari en eldri og konur jákvæðari en karlar.
    Vísbendingar eru um að íslenskir hjúkrunarfræðingar og læknar ræði þessi mál sjaldan við sjúklinga. Einnig hefur verið bent á að samskipti milli hefðbundinna og óhefðbundinna meðferðaraðila séu lítil sem engin á Íslandi og að óhefðbundin meðferð sé lítið sem ekkert samþætt hinni hefðbundnu ólíkt því sem víða hefur átt sér stað í hinum vestræna heimi.

7.    Hver er staða óhefðbundinnar meðferðar með tilliti til skatta, einkum virðisaukaskatts?
    Samkvæmt lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, skal greiða í ríkissjóð virðisaukaskatt af viðskiptum innan lands á öllum stigum og einnig af innflutningi vöru og þjónustu. Þetta er hin almenna regla. Frá henni eru þó ýmsar undantekningar og er t.d. undanþegin virðisaukaskatti þjónusta sjúkrahúsa, fæðingarstofnana, heilsuhæla og annarra hliðstæðra stofnana, svo og lækningar, tannlækningar og önnur eiginleg heilbrigðisþjónusta, sbr. 2. gr. laganna. Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra fær embættið fjölda fyrirspurna frá aðilum sem veita óhefðbundna meðferð varðandi framangreint lagaákvæði um undanþágur frá virðisaukaskatti. Í þessu efni er túlkunaratriði hvað telst vera „eiginleg heilbrigðisþjónusta“ og hefur ríkisskattstjóri leitað til heilbrigðisráðuneytisins um vafaatriði til að fá úr því skorið. Niðurstaðan hefur jafnan verið sú að eingöngu löggiltar heilbrigðisstéttir njóta undanþágu á þeim forsendum að þær veiti „eiginlega heilbrigðisþjónustu“. Dæmi er þó um að grein sem ekki nýtur löggildingar heilbrigðisráðherra hafi fengið undanþágu frá virðisaukaskatti á sömu forsendum. Á það við um „rolfing“ (sbr. ákvarðandi bréf ríkisskattstjóra dags. 28. apríl 2000) en að fenginni umsögn heilbrigðisyfirvalda var það mat ríkisskattstjóra að „rolfing“ teljist til eiginlegrar heilbrigðisþjónustu og skuli því undanþegin virðisaukaskatti.

8.    Hver eru áhrif og virkni óhefðbundinnar meðferðar?

    Umfjöllun nefndarinnar mun fyrst og fremst byggjast á erlendum gagnagrunnum hvað þetta varðar þar sem lítið liggur fyrir af hérlendum rannsóknum.

9.    Hvaða áhætta fylgir notkun óhefðbundinnar meðferðar?

    Hér gildir sama og um 8. spurningu.

10.    Hvert er viðhorf almennings til óhefðbundinnar meðferðar?

    Viðhorf almennings til óhefðbundinnar meðferðar endurspeglast að hluta til í tíðnitölum um notkun slíkra aðferða en samkvæmt þeim leitar að minnsta kosti einn af hverjum fjórum Íslendingum til óhefðbundins meðferðaraðila. Ljóst er að viðhorf mótast af mörgum þáttum eins og kyni, aldri, menntun, tekjum, reynslu, þekkingu og menningu. Notkun óhefðbundinna aðferða virðist almennt ekki koma í stað hefðbundinnar heilbrigðisþjónustu heldur er frekar til viðbótar.

11.    Hve algengt er að fólk leiti til aðila sem bjóða óhefðbundna meðferð?
    Handbærar upplýsingar sem nefndin hefur um þetta efni eru kannanir sem gerðar hafa verið af landlæknisembættinu á fimm ára fresti frá árinu 1985. Þær sýna ótvírætt að fólk leitar í sívaxandi mæli út fyrir hefðbundna heilbrigðisþjónustu. Í könnununum var spurt hve oft á síðastliðnum þremur mánuðum þátttakendur hefðu leitað til aðila er stunda einhverjar þeirra greina sem taldar eru í meðfylgjandi töflu. Árið 1985 höfðu 6,1% þátttakenda leitað til einhverra umræddra greina á síðastliðnum þremur mánuðum á móti 27,8% árið 2000.


1985 1990 1995 2000
Svæðanudd 2,7% 2,8% 12,3% 15,9%
Hnykklækningar 0,1% 0,3% 0,7% 2,3%
Nálastungur 0,3% 0,6% 2,1% 2,8%
Huglækningar 2,0% 1,9% 3,1% 1,0%
Grasa-/náttúrulækningar 0,3% 2,5% 2,0% 1,7%
Jóga/íhugun 0,7% 0,9% 2,4% 4,2%
Samtals 6,1% 8,9% 22,6% 27,8%

12.    Hvernig á að koma til móts við vaxandi umsvif á sviði óhefðbundinnar meðferðar?
    Þörf fyrir viðbrögð til að mæta vaxandi umsvifum óhefðbundinnar meðferðar ræðst einkum af tvennu: Í fyrsta lagi þarf að tryggja eins og kostur er öryggi þeirra sem nýta sér þjónustu á sviði óhefðbundinnar meðferðar. Í því felst m.a. að gera aðgengilegar upplýsingar um einstakar greinar, í hverju þær felast og hvers megi vænta af þeim sem stunda slík meðferðarform með tilliti til menntunar, kunnáttu og færni. Í öðru lagi þarf að bæta starfsumhverfi þeirra sem stunda óhefðbundna meðferð á þann hátt að það hvetji til metnaðar, starfsábyrgðar, faglegra vinnubragða og innra eftirlits. Til að þetta sé mögulegt er skipulegt eftirlit og aðhald af einhverju tagi nauðsynlegt. Auðvelda þarf þeim sem stunda óhefðbundna meðferð eins og t.d. smáskammtameðferð og grasameðferð að afla nauðsynlegra aðfanga. Aukið aðhald og innra eftirlit er að mati Lyfjastofnunar ein meginforsendan fyrir því að unnt sé að bæta úr þessum þætti.

13.    Á að viðurkenna nám í óhefðbundinni meðferð með veitingu starfsréttinda?
    Þessari spurningu er ekki auðsvarað. Þó hefur vinna nefndar um óhefðbundna meðferð frekar orðið til þess að beina sjónum nefndarmanna að öðrum leiðum. Ástæðan er einkum sú að veiting starfsréttinda mundi seint eða aldrei ná til þeirra fjölmörgu greina sem falla undir óhefðbundna meðferð. Því mundi áfram ríkja sama óvissa og nú er um tilverugrundvöll margra þeirra. Það er mat nefndarinnar að æskilegast sé að koma á einhvers konar skipulagi sem nær yfir flesta eða alla þá sem stunda óhefðbundna meðferð. Nauðsynlegt sé að skapa öllum greinum óhefðbundinnar meðferðar ákveðinn starfsramma sem geri kleift að setja lágmarkskröfur um menntun, fagleg vinnubrögð og ábyrgð í starfi. Þetta ætti að koma jafnt notendum og þeim sem stunda óhefðbundin meðferðarform í góða þágu.
    Norðmenn og Danir eru komnir lengst þjóða í að undirbúa formlegt skipulag um starfsemi þeirra sem stunda óhefðbundna meðferð og hafa tekið stefnu sem byggist á sömu hugmyndum og hér hefur verið lýst. Aðferð þeirra felst í að koma á fót skráningarkerfi yfir þá sem stunda óhefðbundna meðferð og uppfylla tiltekin skilyrði. Tekið skal fram að hverjum og einum verður í sjálfsvald sett hvort hann skráir sig eða ekki og skráning er ekki forsenda fyrir því að viðkomandi fái að starfa í sinni grein. Hins vegar má ætla að notendur muni fremur leita til þeirra sem uppfylla skilyrði skráningar og stuðli þannig óbeint að viðgangi skráningarkerfisins.
Neðanmálsgrein: 1
    1     Þóra Jenný Gunnarsdóttir. Sérhæfð meðferð: hvað er það? Tímarit hjúkrunarfræðinga, 1. tbl. 78. árg. 2002, bls. 9–11).
Neðanmálsgrein: 2
    2 Ot. prp. nr. 27 (2002–2003).
Neðanmálsgrein: 3
    *     Ákvæði læknalaga um skottulækningar geta snert þá sem veita óhefðbundna meðferð, t.d. varðandi möguleika þeirra á að auglýsa starfsemi sína. Eftirlit með hugsanlegum brotum þessa ákvæðis er í höndum landlæknis. Brot gegn ákvæðum læknalaga geta varðað sektum eða fangelsisvist eftir eðli brotsins.