Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 198. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 201  —  198. mál.




Frumvarp til laga



um bann við umskurði kvenna.

Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Þuríður Backman.



1. gr.

    Hver sem með ásetningi eða gáleysi veldur tjóni á líkama eða heilsu stúlku eða konu með umskurði á kynfærum hennar, þ.e. með því að fjarlægja hluta þeirra, skal sæta fangelsi allt að sex árum. Hafi verknaðurinn haft svo alvarlegar afleiðingar að bani hlýst af eða brotið er sérstaklega hættulegt vegna aðferðarinnar eða tækja sem notuð eru varðar brotið fangelsi allt að 16 árum.
    Fyrir tilraun til brots og hlutdeild í broti samkvæmt lögum þessum skal refsa samkvæmt ákvæðum III. kafla almennra hegningarlaga.

2. gr.

    Hver sá sem er íslenskur ríkisborgari eða með lögheimili á Íslandi og fremur verknaðinn sem um getur í 1. gr. erlendis eða á hlutdeild í honum skal sæta refsingu samkvæmt þeirri grein þótt verknaðurinn sé ekki refsiverður í landinu þar sem hann er framinn.

3. gr.

    Fyrningarfrestur brota samkvæmt lögum þessum hefst daginn sem brotaþoli nær 14 ára aldri. Að öðru leyti gilda fyrningarreglur IX. kafla almennra hegningarlaga.

4. gr.

    Hverjum þeim sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af málefnum barna og verður var við að stúlka hafi verið umskorin eða eigi á hættu að verða umskorin er skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart.
    Tilkynningarskylda samkvæmt þessari grein gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta var lagt fram seint á 128. löggjafarþingi og náðist ekki að taka það á dagskrá.
    Á 127. löggjafarþingi var lögð fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um hvort tímabært væri að lögfesta bann við umskurði stúlkna og setja viðurlög við slíkum verknaði. Í svari ráðherrans kom fram að umskurður á stúlkum teldist vera líkamlegt ofbeldi en ekki læknisverk og því væri læknum óheimilt að framkvæma hann samkvæmt læknalögum. Samkvæmt refsilöggjöfinni ætti umskurður stúlkna því að falla undir líkamsmeiðingarákvæði almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 218. gr., sbr. síðari breytingar, og vera skilgreindur sem brot á mannréttindaákvæðum stjórnarskrár, barnaverndarlögum, nr. 80/2002, sbr. 98. og 99. gr., og lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997. Þá er alveg ljóst að hann stríðir gegn samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, mannréttindasáttmála Evrópu og samningi um afnám allrar mismununar gagnvart konum frá 1992.
    Í svari ráðherra kom fram að í fortakslausu banni við umskurði stúlkna fælist ákveðin yfirlýsing og teldi hann ekkert því til fyrirstöðu að skoða hvort slíkt bann ætti að leiða í lög. Slíkt bann væri raunar í samræmi við ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem lögfestur var á Íslandi 1992, en þar er kveðið á um að aðildarríki skuli gera allar þær ráðstafanir sem vænlegar eru til árangurs og við eiga í því skyni að ryðja úr vegi hefðum sem eru skaðlegar heilbrigði barna og enn fremur að aðildarríki skuli gæta þess að ekkert barn sé látið sæta pyntingum eða annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.
    Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, hefur hvatt aðildarríki sín til að taka skýra afstöðu gegn þessum verknaði, og Evrópuþingið hefur skorað á aðildarþjóðirnar að lögfesta refsiákvæði gegn þeim sem framkvæmir slíka aðgerð enda sé umskurður stúlkna í raun limlesting þar sem aðgerðin felur í sér brottnám hluta kynfæra og getur haft alvarlegar afleiðingar, jafnvel dauða. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin vakið athygli á því að hugsanlegt sé að beita þær þjóðir þvingunarúrræðum sem stunda umskurð á stúlkum. Þannig sé hægt að skilyrða styrki til þjóðanna, t.d. gegn því að þær samþykki að styðja aðgerðir gegn umskurði stúlkna.
    Umskurður er afar frumstæður verknaður sem á sér djúpar rætur og hefur tíðkast um aldir. Þótt algengt sé að siðurinn sé tengdur við islam þá er hann ekki bundinn við nein ákveðin trúarbrögð og er reyndar ekki trúarleg athöfn heldur miklu frekar samfélagsleg venja. Umskurður stúlkna er ekki síður tíðkaður í löndum þar sem þorri fólks telst til kristinnar trúar eins og í Eþíópíu og Kenýa, en talið er að hann eigi rætur að rekja til Afríku og þar mun hann vera útbreiddastur í dag. Ekki eru til margar áreiðanlegar rannsóknir á útbreiðslu umskurðar á stúlkum en hann er enn framkvæmdur í 28 Afríkulöndum og að einhverju leyti í löndum islams í Indónesíu, Sri Lanka, Malasíu og Indlandi, í Egyptalandi, Óman, Jemen og Sameinuðu arabísku furstadæmunum og hjá frumstæðum ættbálkum Suður-Ameríku.
    Samtökin Amnesty International áætla að um 135 milljónir núlifandi kvenna og stúlkna í heiminum hafi þolað þessar misþyrmingar á kynfærum sínum og að um 2 milljónir stúlkubarna séu umskornar á hverju ári, um 6.000 á dag. Umskurður er yfirleitt framkvæmdur á ungum stúlkum allt frá sjö daga gömlum, en algengast er að þær séu á aldrinum frá fjögurra til 14 ára. Athöfnin er ævinlega framkvæmd við frumstæðar aðstæður og á rætur í frumstæðum hugmyndum um konur og kvenlíkamann. Bágbornar efnahagslegar og félagslegar aðstæður kvenna viðhalda vanþekkingunni og hindurvitnunum. Meðal þeirra skýringa sem gefnar eru fyrir verknaðinum er að tryggja eigi meydóm, bæla niður náttúrulega kynhvöt og koma í veg fyrir lauslæti og samkynhneigð, auk þess sem umskurður er sagður tryggja konum farsælt hjónaband og barneignir.
    Orðið umskurður dregur ekki fram alvarleika verknaðarins sem er í raun misþyrming, afskræming eða limlesting og eru siðvenjur tengdar honum mismunandi eftir löndum. Ákveðinn heiður er tengdur verknaðinum og því meiri eftir því sem umskurðurinn er meiri. Minnsta aðgerðin felst í því að fremsti hluti sníps er fjarlægður, næsta að snípur er fjarlægður, þá eru snípur og ytri skapabarmar fjarlægðir að hluta eða alveg og mesta aðgerðin, „kynfæralokun“, felst í því að snípur, ytri og innri skapabarmar eru fjarlægðir, sárið saumað saman og skilið eftir gat fyrir þvag og tíðablóð. Umskurði fylgir mikill líkamlegur og sálrænn sársauki, ör, blöðrur og bólgur. Eftirköstin geta verið bráðalost, sýkingar, skemmdir í þvagrás, örmyndun, stífkrampi, blöðrubólga, blóðeitrun, HIV-smit og lifrarbólga B. Til lengri tíma getur aðgerðin orsakað langvarandi og síendurteknar sýkingar í þvagrás og leggöngum, ófrjósemi, æxla- og kýlamyndanir, kvalafull taugaæxli, vaxandi erfiðleika við að hafa þvaglát, tíðaverki, uppsöfnun tíðablóðs í kviðarholi, sársauka við samfarir, kyndeyfð, þunglyndi og dauða. Þá getur umskurður tvöfaldað hættuna á að konur deyi af barnsförum og margfaldað hættuna á að börn fæðist andvana.
    Mikill samfélagslegur þrýstingur er á að umskurður stúlkna sé framkvæmdur þar sem slíkt hefur tíðkast og hafa alþjóðastofnanir brugðist við með því að gera út sendifulltrúa og styðja samtök, t.d. í Afríku, sem berjast gegn umskurði. Kannanir hafa sýnt að áróður gegn umskurði er farinn að skila árangri. Í sumum þorpum hefur verið tekin sameiginleg ákvörðun um að leggja þessa hefð af en viðhalda hátíð, svipaðri fermingu, sem hefur verið haldin áður en umskurðurinn hefur verið framkvæmdur. Reynt hefur verið að hafa áhrif á þá sem sjá um að fremja verknaðinn og einnig foreldra með því að koma því á framfæri að menntaðir menn kjósi frekar óumskornar konur og gera þannig eftirsóknarvert að láta ekki umskera stúlkubörn.
    Í kjölfar aukins fjölda innflytjenda frá löndum þar sem umskurður tíðkast hefur þörf fyrir lagasetningu er bannar verknaðinn aukist í löndum Evrópu. Vitað er að verknaðurinn hefur viðgengist í Danmörku, Bretlandi, Frakklandi, á Spáni, í Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu og því gæti þess verið skammt að bíða að siðurinn bærist hingað til lands. Það hefur rekið á eftir lagasetningu af þessu tagi í Evrópulöndum að stúlkubörn hafa látist í kjölfar aðgerðar. Í Bretlandi voru t.d. sett ákvæði í lög 1985 um bann við hvers konar umskurði eða brottnámi kynfæra stúlkna en ekki fyrr en eftir að þrjár stúlkur dóu í kjölfar umskurðar. Í Bretlandi hefur þó aldrei verið refsað samkvæmt ákvæðinu en þónokkrar ákærur gefnar út.
    Nú liggur fyrir frumvarp í danska þinginu sem bannar hvers konar umskurð á kynfærum stúlkna sem hafa danskan ríkisborgararétt eða eiga lögheimili í Danmörku. Frumvarp þetta tekur mið af því frumvarpi að viðbættum sérákvæðum um fyrningu sem eru í samræmi við fyrningarákvæði hegningarlaga varðandi kynferðisbrot á börnum, sbr. 82. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. lög nr. 63/1998, og hefst fresturinn á þeim degi er börnin ná fjórtán ára aldri. Umskurður er yfirleitt framkvæmdur á stúlkubörnum en uppgötvast oft ekki fyrr en við læknisskoðun á fullorðinsaldri, enda feimnismál og erfitt að fá stúlkur sem hafa verið umskornar til að tjá sig um hann fyrir utan sitt heimaland. Þannig gætu fyrningarákvæði íslenskra hegningarlaga komið í veg fyrir refsingu og telja flutningsmenn eðlilegt, með tilliti til alvarleika þessara brota, að veita brotaþolum aukna refsivernd og bætta réttarstöðu.
    Þá telja flutningsmenn nauðsynlegt að árétta tilkynningarskyldu þeirra sem vinna með börnum og hafa sérstakt ákvæði í frumvarpinu, sambærilegt við ákvæði barnaverndarlaga, nr. 80/2002, og gengur sú skylda framar þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta, en í Danmörku hafa komið upp nokkur álitamál um tilkynningarskyldu. Þá er mikilvægt við meðferð viðkvæmra mála sem þessara að hagsmunir og velferð brotaþola séu höfð í fyrirrúmi. Rétt er að vekja athygli á því að í lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, með síðari breytingum, eru m.a. þau skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar í 5. gr. a að umsækjandi hafi ekki sætt varðhalds- eða fangelsisrefsingu eða eigi ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi. Það er mat flutningsmanna að þau brot er hér um ræðir girði fyrir veitingu íslensks ríkisborgararéttar.
    Eitt af því sem mælir með því að lög af þessu tagi verði lögfest á Íslandi er sú staðreynd að enn hefur ekki komið í ljós að verknaður af þessu tagi hafi verið unninn hér og það gefur okkur tækifæri til að fyrirbyggja slíkan verknað áður en skaðinn er skeður. Það væri jafnvel erfiðara að fást við lagasetningu sem þessa eftir að einhver dæmi um verknaðinn hefðu komið upp. Eftir því sem sérlög sem banna umskurð verða algengari verður erfiðara fyrir þjóðir að viðhalda þessari fornu hefð sem veldur tjóni á lífi, líkama, andlegri heilsu og líðan barna. Umskurður byggist einungis á fornum sið án þess að fyrir honum séu nokkur gjaldgeng rök.
    Það er skylda Íslendinga í samfélagi þjóðanna að leggja sitt af mörkum til að þessi forna hefð verði aflögð og komið verði í veg fyrir limlestingu fjölda stúlkubarna. Verði frumvarpið að lögum er það fyrirbyggjandi aðgerð og skýr yfirlýsing um stuðning Íslendinga við baráttuna gegn þessum hroðalegu misþyrmingum og mannréttindabrotum á börnum og konum í heiminum.