Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 262. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 295  —  262. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um endurhæfingardeild fyrir krabbameinssjúklinga.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir eflingu endurhæfingardeildar krabbameinssjúklinga í Kópavogi og ef svo er, á hvern hátt?
     2.      Verður áframhaldandi starfsemi tryggð á þeim stað sem hún er, þ.e. í Kópavogi?