Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 308. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 353  —  308. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skuldajöfnun skattskulda.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hefur ráðherra lagaheimild til að breyta reglugerð um greiðslu barnabóta þannig að tryggja megi að barnabætur séu ekki skuldajafnaðar móti skuldum fyrrverandi maka?
     2.      Hyggst ráðherra leggja til breytingar svo að afstýra megi fjárhagserfiðleikum sem framfærandi barns getur lent í þegar skilnaður dregst á langinn og maki stofnar til skulda sem síðan er skuldajafnað við barnabæturnar?