Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 437. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 792  —  437. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar um íslenska álinn.

    Leitað var svara hjá Veiðimálastofnun.

     1.      Hvaða upplýsingar liggja fyrir um lífshætti áls og álagöngur í íslenskum ám og votlendi?
    Upplýsingar um lífshætti ála og álagöngur á Íslandi er að finna í nokkrum greinum í ritrýndum tímaritum, bókaköflum, skýrslum, greinargerðum og gagnasöfnum. Þekking á lífsháttum ála hérlendis er samt enn tiltölulega takmörkuð og ljóst að þörf er mun meiri rannsókna. Mikilvæg vitneskja hefur þó aflast með þeim rannsóknum sem farið hafa fram síðustu árin.

     2.      Hvaða rannsóknarverkefni varðandi íslenska álinn eru í gangi, hvar eru þau vistuð og hve miklu fjármagni er áætlað að verja til þeirra?
—    Rannsóknir á útbreiðslu og lífsháttum ála á Íslandi. Verkefnið er vistað á Hólum í Hjaltadal og unnið í samvinnu við Tókíó-háskóla í Japan og Guelph-háskóla í Kanada.
—    Rannsóknir á sjávarálum við Ísland. Verkefnið sem er nýtt er vistað á Hólum og unnið í samvinnu við Tókíó-háskóla í Japan og Guelph-háskóla í Kanada.
—    Rannsóknir á útbreiðslu og tíðni kynblendinga Evrópuáls og Ameríkuáls á Íslandi. Verkefnið er vistað á Hólum og unnið í samvinnu við Laval-háskóla í Kanada.
—    Rannsóknir á erfðasamsetningu ála á Íslandi. Verkefnið er vistað á Hólum og unnið í samvinnu við Leuven-háskóla í Belgíu.
—    Rannsóknir á glerálagöngum til Íslands. Verkefnið er vistað á Hólum og unnið í samvinnu við Tókíó-háskóla í Japan og Guelph-háskóla í Kanada.
—    Veiðar á glerálum til álaeldis. Verkefnið hefst í vor og er vistað á Hólum og unnið í samvinnu við aðila í fiskeldi og veiðum.
    Til framangreindra verkefna sem vistuð eru á Hólum verður varið í fjárlögum 2004 einni milljón króna.
—    Rannsóknir á sníkjudýrum ála. Verkefnið er vistað hjá Rannsóknastöð háskólans í meinafræðum að Keldum og kostað af rannsóknastyrkjum.

     3.      Hvaða rannsóknir hafa áður verið gerðar á lífsháttum íslenska álsins?
    Á undanförnum áratugum hefur takmarkaðri athygli verið beint að rannsóknum á ál á Íslandi og að mestu verið stuðst við rannsóknir erlendis á lífsháttum ála. Af og til hafa þó verið í gangi svæðisbundnar rannsóknir og átaksverkefni sem hafa miðað að því að auka nytjar af ál á Íslandi. Suðurlandsdeild Veiðimálastofnunar stóð fyrir rannsóknum á bjartálagöngum og mögulegum nytjum af álaveiðum á Suðurlandi fyrir um 10 árum og smærri úttektir á möguleikum á álaveiðum hafa farið fram á Vesturlandi. Úttekt á fæðuvali ála fór fram á Hólum í samstarfi við Líffræðistofnun HÍ og ýmiss konar gögn um lífshætti ála hafa einnig safnast samhliða öðrum rannsóknum. Með umfangsmestu rannsóknum sem farið hafa fram á álum hérlendis eru rannsóknir á glerálagöngum til landsins sem vistaðar eru á Hólum í Hjaltadal og unnar eru í samstarfi við erlendar rannsókna- og háskólastofnanir. Þrátt fyrir að mikil þekking hafi aflast á glerálagöngum og veiðum á glerál á síðustu árum er ljóst að þörf er á mun meiri rannsóknum á lífsháttum ála hérlendis og þá ekki síst því sem snýr að öðrum lífsskeiðum álsins, gulálum og bjartálum.

     4.      Hversu miklum fjármunum hefur verið kostað til þeirra rannsókna sl. 10 ár? Óskað er eftir að upphæðir séu tilgreindar fyrir hvert ár.
    Á safnlið landbúnaðarráðuneytisins hefur verið veitt til rannsókna á glerál: árið 2000 500 þús. kr., árið 2001 700 þús. kr., árið 2002 800 þús. kr. og árið 2003 800 þús. kr.

     5.      Á hvaða svæðum landsins er einkum að finna ála?
    Til skamms tíma var talið að ála væri aðallega að finna á suðvestanverðu landinu, Suðurlandi og ekki austar en í Berufirði. Einnig að ála væri í takmörkuðum mæli að finna á norðvestanverðu landinu og þeir væru ekki á Austurlandi og Norðurlandi eystra. Nýlegar rannsóknir og samantekt upplýsinga frá heimafólki víðs vegar um landið sýna að álar eru útbreiddir um allt land og nýta sér fjölbreyttari búsvæði en áður var talið, en mest er af þeim á svæðinu frá Barðaströnd í vestri, um Vesturland, Suðurland og austur að Hornafirði. Ein mikilvægasta viðbótin við þekkingu á útbreiðslu og búsvæðavali ála á Íslandi er að talsvert er af álum í sjó á strandsvæðum víða um land.

     6.      Í hvers konar veiðarfæri og með hvers konar aðferðum er áll einkum veiddur? Hafa verið gerðar einhverjar tilraunir með veiðitækni í því skyni að auka afla?
    Gulálar og bjartálar eru nánast eingöngu veiddir í vængjagildrur í vötnum, eða ám og lækjum. Það eru sömu veiðarfæri og mest eru notuð erlendis. Vegna birtuskilyrða veiðast gulálar helst á vorin áður en nætur verða bjartar og síðla sumars þegar dimma fer að nóttu. Bjartálar veiðast frá september og fram í nóvember og dæmi eru um að þeir hafi veiðst fram í desember. Veiðitímabil bjartála er því lengra en þekkist í öðrum Evrópulöndum. Aftur á móti eru þeir tímar ársins sem henta til gulálaveiða takmarkaðri hér vegna bjartra sumarnátta og lágs vatnshita stóran hluta ársins. Álar hreyfa sig lítið um þegar vatnshiti er undir 5 ° C og varast gildrur í dagsbirtu. Fyrir utan hefðbundnar veiðiaðferðir hafa verið gerðar tilraunir þar sem notuð eru netbúr með beitu á stöðum þar sem erfitt er að koma við öðrum veiðiaðferðum. Þær veiðiaðferðir hafa þó ekki gefist vel. Einnig hefur verið beitt rafveiði við álaveiðar og gefast þær best í vatnsminni ám og lækjum. Ekki hafa verið gerðar tilraunir sérstaklega með önnur veiðarfæri. Umfangsmiklar tilraunir hafa aftur á móti farið fram með veiðitækni til glerálaveiða þar sem notaðar hafa verið ýmsar útgáfur af gildrum, nótaveiði, rafveiðar og nokkrar gerðir háfa.

     7.      Liggja fyrir upplýsingar um álaveiði sl. 10 ár?
    Ekki hefur verið fyrir hendi fast skráningarkerfi fyrir álaveiðar líkt og tíðkast með lax- og silungsveiðar. Því eru upplýsingar um veiðitölur af skornum skammti. Gróflega má þó áætla að síðustu 10 ár hafi verið veidd á bilinu 5–15 tonn árlega af álum hérlendis og þá aðallega bjartál sem veiddur er á haustin þegar hann fer af stað á hrygningarstöðvarnar. Mest var á þessu tímabili veitt af ál á árunum 1996–1998 þegar félagsskapur álaveiðimanna, Norðuráll, stóð fyrir átaki í álaveiðum.

     8.      Hvað meta sérfræðingar íslenska álastofninn stóran, og hve mikið er líklegt að megi veiða án þess að ganga of nærri honum?
    Rannsóknir á Suðurlandi benda til þess að þar megi veiða yfir 10 tonn af ál á ári án þess að ganga of nærri stofninum og á Vesturlandi gæti það farið yfir 20 tonn. Ef litið er til landsins alls gætu þessar tölur verið um 50–80 tonn. Hér er miðað við ár, vötn, tjarnir og ísölt lón víðs vegar um landið. Nýjar rannsóknir sýna að ál er að finna í sjó í kringum landið og gefa fyrirheit um að einnig megi veiða talsvert af ál í sjó og auka þannig mögulegt veiðimagn enn frekar. Áætlanir um stærð veiðistofns og veiðiþol byggjast þó á veikum grunni vegna takmarkaðrar þekkingar á magni og lífsháttum áls á Íslandi. Þörf er mun meiri rannsókna til að fá skýrari mynd af mögulegum álanytjum hérlendis.

     9.      Telur ráðuneytið að veiðar á ál og vinnsla afurða séu líkleg til að geta vaxið og staðið undir sér sem atvinnugrein?
    Veiðar á álum og vinnsla álaafurða hefur alla möguleika á að verða mikilvæg aukabúgrein hérlendis en til að veiðarnar og vinnslan geti orðið öflug atvinnugrein vantar mikla rannsókna- og þróunarvinnu.

     10.      Hafa verið gerðar tilraunir með áframeldi á íslenskum glerál? Ef svo er, hver virðast helstu tæknilegu vandamálin við eldið? Gefa niðurstöður tilrauna tilefni til að meta hvort áframeldi á íslenskum glerál væri líklegt til að standa undir sér?
    Tilraunir með áframeldi á íslenskum glerálum hafa ekki farið fram til þessa. Gera má ráð fyrir að tæknileg vandamál við hugsanlegt eldi séu þau sömu og í þeim nágrannalöndum okkar þar sem slíkt eldi fer fram, svo sem Danmörku og Hollandi. Við eldi hérlendis mundu menn hins vegar njóta þess hve mikið framboð er hér af heitu vatni til slíks eldis og að hingað hafa ekki borist sníkjudýr sem valdið hafa verulegum skaða í álaeldi víða um heim, vegna flutnings glerála á milli landa. Bann við innflutningi erlendra glerála hefur einmitt verið mikilvæg vörn gegn innflutningi sjúkdóma og sníkjudýra sem plagað hafa náttúrulega fiskistofna og fiskeldi erlendis. Veiðar á íslenskum glerálum eru því forsenda þróunar álaeldis á Íslandi. Kynákvörðun ála er umhverfisháð og ræðst snemma á lífsferlinum. Hrygnur vaxa mun betur en hængar í eldi og hátt hlutfall hrygna á Íslandi getur gert íslenska glerála enn verðmætari fyrir áframeldi en ella. Hérlendis eru aðstæður hagstæðar til álaeldis og líklegt að við gætum verið samkeppnisfær við önnur Evrópulönd í álaeldi. Líkt og í öðru fiskeldi á Íslandi er fjarlægð frá markaðssvæðum einn helsti ókosturinn. Nokkur óvissa ríkir þó um hvernig Evrópulöndum muni takast að mæta aukinni framleiðslu og samkeppni við Asíulönd og þá sérstaklega Kína þar sem framleiðslukostnaður er mjög lítill. Samkvæmt upplýsingum frá Asíulöndum hefur markaðseftirspurn eftir álaafurðum þó aukist samhliða framleiðsluaukningu.

     11.      Hafa verið gerðar rannsóknir á göngum gleráls með það fyrir augum að nota íslenskan glerál til áframeldis? Er hægt á grundvelli þeirra að meta hversu mikils magns gleráls megi afla úr íslenskum ám til hugsanlegs áframeldis? Hvað gæti það magn við bestu aðstæður staðið undir miklu álaeldi?
    Síðustu þrjú ár hefur verið í gangi átak í rannsóknum á göngum gleráls til Íslands. Áður en það verkefni hófst höfðu á undanförnum 20 árum verið gerðar nokkrar árangurslitlar tilraunir til veiða á glerál og voru tilraunaveiðar Jóns Gunnars Schram árin 1992 og 1993 í Meðallandi og Landbroti þeirra umfangsmestar. Þær rannsóknir á göngum gleráls sem hafa verið í gangi síðustu þrjú árin hafa skilað góðum árangri og mikilsverðum niðurstöðum um göngur glerála til Íslands. Eitt helsta markmið rannsóknanna var að kanna hvort hérlendis væri mögulegt að veiða glerála í nægjanlegu magni til álaeldis og að þróa veiðiaðferðir til glerálaveiða. Takmörkuð þekking var áður á glerálagöngum til landsins og hvernig best væri að veiða þá, en hún er grundvöllur þess að hægt sé að veiða glerála í atvinnuskyni og forsenda þess að hægt sé að hefja samkeppnishæft álaeldi á Íslandi. Tekist hefur í þessum rannsóknum að staðfesta að göngurnar eru árvissar, að hægt er að veiða glerála á fjölda staða á Íslandi og í nægjanlegu magni til að hefja tilraunir með álaeldi. Á þessu ári mun sú þekking sem aflast hefur verða nýtt til veiða á glerálum í áframeldi. Of snemmt er að segja til um hve miklu magni gleráls verður hægt að ná og taka verður tillit til verndunarsjónarmiða og þess að göngurnar eru misstórar eftir árum.



Fylgiskjal.


Bjarni Jónsson,
Veiðimálastofnun:


MINNISBLAÐ
Almennar upplýsingar um nytjar og lífshætti ála (Anguilla sp.).


    Þeir álar sem finnast hérlendis hrygna í Þanghafinu en lirfur þeirra berast hingað ári síðar með hafstraumum um 5.000 km leið og nefnast þá glerálar. Þeir taka á nokkrum árum út vöxt sinn í ferskvatni, ísöltum vötnum, árósum eða sjó og eru á því æviskeiði kallaðir gulálar. Eftir um 5 til 20 ára tíma umbreytast álarnir í bjartála og ganga aftur á hrygningarslóð til hrygningar og ljúka lífsferli sínum. Álar eru mest veiddir þegar þeir hafa náð nokkrum vexti sem gulálar eða sem bjartálar á göngu sinni í sjó. Ekki hefur enn tekist að æxla saman álum og halda álalirfum lifandi nægjanlega lengi til að nota þær í álaeldi. Samkeppnisfært álaeldi byggist því að veiða glerála og nota þá í áframeldi.