Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 521. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 796  —  521. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um fjárveitingar til rannsóknastofnana.

Frá Ásgeiri Friðgeirssyni.



    Hversu mikið fé var veitt úr opinberum sjóðum á vegum heilbrigðisráðuneytis til vísinda, rannsókna og þróunarstarfs eftirtalinna stofnana árin 2001, 2002 og 2003 og úr hvaða sjóðum rann féð, hver ákvað fjárveitingarnar og á hvaða forsendum:
    Landspítala – háskólasjúkrahúss,
    Blóðbankans,
    Krabbameinsmiðstöðvar Landspítala – háskólasjúkrahúss,
    Rannsóknastofu í næringarfræði,
    Rannsóknastofnunar Landspítala – háskólasjúkrahúss,
    Rannsóknastofu í öldrunarfræðum,
    Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri,
    Geislavarna ríkisins,
    Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands,
    Lýðheilsustöðvar, áður manneldisráðs?


Skriflegt svar óskast.