Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 526. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 801  —  526. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um fjárveitingar til rannsóknastofnana.

Frá Ásgeiri Friðgeirssyni.



    Hversu mikið fé var veitt úr opinberum sjóðum á vegum samgönguráðuneytis til vísinda, rannsókna og þróunarstarfs eftirtalinna stofnana árin 2001, 2002 og 2003 og úr hvaða sjóðum rann féð, hver ákvað fjárveitingarnar og á hvaða forsendum:
    Ferðamálasjóðs,
    Siglingastofnunar Íslands,
    Vegagerðarinnar,
    rannsóknarnefndar flugslysa,
    rannsóknarnefndar sjóslysa?


Skriflegt svar óskast.