Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 646. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 963  —  646. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um framtíð sjúklinga á Arnarholti.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hversu margir sjúklingar verða fluttir frá Arnarholti?
     2.      Hversu mörgum þeirra gætu nýst félagsleg úrræði eins og t.d. sambýli?
     3.      Mun ráðherra beita sér fyrir slíkum úrræðum áður en sjúklingarnir verða fluttir frá Arnarholti?